SkjölunMeð gervigreind
Taktu við greiðslum í Bolt
Hvernig þú tekur við kortagreiðslum í forriti sem er smíðað í Bolt á Íslandi með Kling. Afritaðu eina skipun inn í Bolt, geymdu leynilykilinn í umhverfisbreytu á þjóninum og prófaðu með prufukorti.
Fljótlegast: láttu gervigreindina vinna verkið
Afritaðu skipunina og límdu hana í ChatGPT, Claude, Cursor, Lovable eða annað gervigreindartól. Það les leiðbeiningarnar okkar, spyr út í reksturinn og velur rétta leið.
Þú getur tekið við greiðslum í Bolt-forriti á Íslandi með Kling, greiðslulausn fyrir Ísland sem tekur við kortum, Apple Pay og Google Pay í íslenskum krónum. Stripe tekur ekki við íslenskum fyrirtækjum, svo það er Kling sem þú segir Bolt frá. Uppsetningin er sú kunnuglega: kóði á þjóninum býr til greiðsluferli og viðskiptavinurinn greiðir í greiðsluglugga á síðunni þinni eða á greiðslusíðu Kling.
Hvað Bolt smíðar
Bolt bætir endapunkti á þjóninum við forritið, til dæmis API route, eða Supabase Edge Function ef verkefnið notar Supabase sem bakenda. Þegar viðskiptavinur smellir á Greiða býr endapunkturinn til greiðsluferli með upphæðinni og leynilyklinum þínum. Upphæðir eru heilar krónur, svo 5000 þýðir 5.000 kr. Svo opnar vefsíðan greiðslugluggann ofan á sjálfri sér, eða sendir viðskiptavininn á greiðslusíðu Kling og aftur til baka þegar hann hefur greitt. Kortaupplýsingarnar fara beint til Kling og koma aldrei við í forritinu.
Bolt bætir líka við endapunkti fyrir webhooks: Kling kallar á hann þegar greiðsluferli lýkur, hann staðfestir undirskriftina og merkir pöntunina greidda. Þannig er pöntunin staðfest þótt viðskiptavinurinn loki vafranum áður en hann kemst aftur á síðuna. Ef viðskiptavinurinn greiðir með kröfu getur greiðsluferlinu lokið um leið og krafan er send, áður en hún er greidd (payment_status er þá awaiting_claim), og þá er pöntunin fyrst greidd þegar atburðurinn payment_intent.captured berst.
Hvar leynilykillinn á heima
Skráðu þig á kling.is/signup og afritaðu prófunarlykilinn (sk_test_...) af síðunni API lyklar og skjölun. Aðeins kóði á þjóninum má lesa hann. Í Bolt-verkefni fer hann í umhverfisbreytur verkefnisins, án forskeytis eins og VITE_ eða NEXT_PUBLIC_, því slík forskeyti senda breytuna í vafrann. Ef bakendinn keyrir á Supabase geymir þú lykilinn frekar sem Supabase secret, eins og lýst er fyrir Lovable. Þegar þú setur forritið í loftið bætir þú sömu breytu við í stillingum hýsingaraðilans. Undirritunarlykill webhooksins, sem þú færð þegar þú bætir webhookinu við undir Forritarar → Webhooks í stjórnborðinu, er geymdur á sama hátt.
Prófaðu
Með prófunarlykli fara engir raunverulegir peningar á milli. Greiddu með 4111 1111 1111 1111, hvaða gildistíma sem er fram í tímann og hvaða CVC sem er, og athugaðu hvort pöntunin merkist greidd. 4000 0000 0000 0002 er hafnað, svo þú sérð hvernig forritið bregst við greiðslu sem gengur ekki.
Í loftið
Sæktu um að taka við raunverulegum greiðslum í stjórnborðinu. Kling sækir um hjá færsluhirði fyrir þig, og þegar umsóknin hefur verið samþykkt býrðu til raunlykil og setur hann í stað prófunarlykilsins. Annað í kóðanum breytist ekki. Raunumhverfið hefur sitt eigið webhook og sinn eigin undirritunarlykil. Sjá Úr prófunum í raunumhverfi.
Til að byrja afritar þú skipunina efst á síðunni og límir hana inn í Bolt.