# Taktu við greiðslum í Bolt

Hvernig þú tekur við kortagreiðslum í forriti sem er smíðað í Bolt á Íslandi með Kling. Geymdu lykilinn í umhverfisbreytu á þjóninum, límdu inn eina skipun og prófaðu með prufukorti.

Stripe tekur ekki við íslenskum fyrirtækjum. Kling er greiðslulausn fyrir Ísland sem þú getur bætt við Bolt-forrit með einni skipun: endapunktur á þjóninum býr til greiðsluferli og viðskiptavinurinn greiðir í glugga á síðunni þinni.

## 1. Náðu í prófunarlykil

Skráðu þig á [kling.is/signup](https://kling.is/signup) og afritaðu prófunarlykilinn (`sk_test_...`) af síðunni **API lyklar og skjölun**.

## 2. Haltu lyklinum á þjóninum

Aðeins kóði á þjóninum má lesa leynilykilinn. Settu hann í `.env` skrá verkefnisins sem `KLING_SECRET_KEY`, án forskeytis eins og `VITE_` eða `NEXT_PUBLIC_`, sem myndi senda hann í vafrann. Ef Bolt-verkefnið notar Supabase sem bakenda geymir þú hann frekar sem Supabase secret og fylgir [leiðbeiningunum fyrir Lovable](https://kling.is/docs/lovable): skrefin eru þau sömu.

## 3. Límdu þessa skipun inn í Bolt

```text
Bættu Kling greiðslum við þetta forrit. Kling (kling.is) er greiðslulausn fyrir Ísland. Lestu https://kling.is/docs/bolt.md og https://kling.is/docs/embedded-checkout.md áður en þú byrjar.

1. Bættu við endapunkti á þjóninum (API route, ekki framendakóða) sem kallar á POST https://api.kling.is/v1/checkout/sessions með "Authorization: Bearer ${KLING_SECRET_KEY}" úr umhverfisbreytum og JSON með upphæðinni og "currency": "ISK". Skilaðu id greiðsluferlisins. Upphæðir eru heilar krónur (5000 þýðir 5.000 kr.); aldrei margfalda með 100.
2. Í framendanum skaltu setja upp @klingis/embed. Þegar viðskiptavinurinn smellir á Greiða kallar þú á endapunktinn og opnar greiðslugluggann með Kling.init({ locale: "is" }) og kling.checkout({ sessionId }).
3. Bættu við webhook-endapunkti sem staðfestir X-Kling-Signature hausinn ("sha256=" og HMAC-SHA256 af hráu meginmáli í hex, með KLING_WEBHOOK_SECRET sem lykil) og merkir pöntunina greidda við checkout.session.completed.
4. Sendu leynilykilinn aldrei í vafrann.
```

## 4. Prófaðu

Greiddu með `4111 1111 1111 1111`, hvaða gildistíma sem er fram í tímann og hvaða CVC sem er. `4000 0000 0000 0002` er hafnað.

## Webhooks og í loftið

Þegar forritið er komið í loftið bætir þú við webhook undir **Tilkynningar** í stjórnborðinu og setur undirritunarlykilinn í `KLING_WEBHOOK_SECRET`. Sjá [Webhooks](https://kling.is/docs/webhooks) og [Úr prófunum í raunumhverfi](https://kling.is/docs/going-live).
