Fyrir fyrirtæki og forritara á Íslandi

Greiðslugátt og API fyrir íslensk fyrirtæki

Kling er greiðslugátt og API fyrir íslensk fyrirtæki. Taktu við kortagreiðslum, áskriftum og kröfum í heimabanka í íslenskum krónum, hvort sem þú tengir þær í eigin kóða, í app sem þú smíðar með gervigreind eða notar engan kóða.

Stripe tekur ekki við fyrirtækjum á Íslandi en Kling gerir það: þú skráir þig á nokkrum mínútum, færð prófunarlykla strax og tekur við raunverulegum greiðslum þegar aðgangurinn hefur verið staðfestur.

Stripe tekur ekki við íslenskum fyrirtækjum. Kling gerir það.

Ísland er ekki á lista Stripe yfir lönd sem þjónustan nær til (athugað í október 2026), svo fyrirtæki sem er skráð á Íslandi getur ekki stofnað aðgang hjá Stripe. Algenga svarið, „notaðu bara Stripe“, gengur því ekki upp hér.

Kling er smíðað á Íslandi fyrir fyrirtæki á Íslandi. Við sækjum um hjá færsluhirði fyrir þína hönd og sjáum um samskiptin, og uppgjör fer inn á þinn eigin bankareikning.

Svona byrjar þú að taka við greiðslum á netinu

  1. 1

    Stofna aðgang

    Skráðu þig á kling.is. Það kostar ekkert og tekur nokkrar mínútur.

  2. 2

    Prófaðu í prófunarumhverfinu

    Prófunarumhverfið opnast um leið og þú skráir þig. Settu allt upp og prófaðu án þess að nokkrir raunverulegir peningar hreyfist.

  3. 3

    Veldu hvernig þú færð greitt

    Sendu greiðsluhlekk, settu upp áskriftir, sendu kröfur í heimabanka eða tengdu vefsíðuna eða appið við forritaskilin. Greiðsluhlekkir og áskriftir þurfa engan kóða.

  4. 4

    Farðu í loftið

    Sæktu um í stjórnborðinu. Kling sækir um hjá færsluhirði fyrir þig og kortagreiðslur opnast þegar færsluhirðirinn samþykkir. Kröfur í heimabanka geta verið samþykktar fyrr.

Hvað þú getur tekið við

  • Kortagreiðslur

    Visa og Mastercard: á netinu, með greiðsluhlekk eða á staðnum með Kling POS.

  • Apple Pay og Google Pay

    Viðskiptavinir geta greitt með Apple Pay eða Google Pay í greiðsluferlinu.

  • Áskriftir

    Rukkaðu vikulega, mánaðarlega eða árlega, með þjónustusíðu þar sem viðskiptavinir uppfæra kortið sitt og sjá um áskriftina sína.

  • Kröfur í heimabanka

    Krafan birtist í heimabanka greiðandans. Hentar vel fyrir reikninga, félagsgjöld og fyrirtæki í viðskiptum.

  • Íslenskar krónur

    Upphæðir eru í heilum krónum. Krónan hefur enga aukastafi, svo 1000 þýðir 1.000 kr.

  • Íslenska og enska

    Greiðsluferlið birtist á íslensku eða ensku, eftir þínu vali eða stillingu í vafra kaupandans.

Prófaðu strax, farðu í loftið eftir staðfestingu

Um leið og þú skráir þig

  • Allt stjórnborðið: greiðsluhlekkir, áskriftir, vörur, viðskiptavinir, Kling POS og kröfur í heimabanka.
  • Prófunarlykill (sk_test_...) og öll forritaskilin (API), SDK, CLI og MCP þjónninn.
  • Prófunargreiðslur með korti.

Engin staðfesting, ekkert kort og enginn samningur.

Eftir staðfestingu

  • Sæktu um að fara í loftið í stjórnborðinu: upplýsingar um fyrirtækið, bankareikning fyrir uppgjör og hvað þú selur.
  • Kortagreiðslur: færsluhirðir samþykkir umsóknina. Hve langan tíma það tekur ræðst mest af því hve fljótt gögnin berast.
  • Kröfur í heimabanka: þú skrifar undir kröfusamninginn í umsókninni, svo þú getur byrjað að senda kröfur áður en kortagreiðslur eru samþykktar.
  • Síðan býrðu til lykil fyrir raunumhverfið (sk_live_...) og setur hann í stað prófunarlykilsins. Ekkert annað í kóðanum breytist.

Byrjaðu á 5 mínútum

Keyrðu Kling CLI í rót verkefnisins. Það skráir þig inn, skrifar prófunarlykilinn í .env.local, getur skráð webhook og skrifar skipun fyrir gervigreindarritilinn þinn.

npx @klingis/cli init

Eða kallaðu beint á forritaskilin. Þetta stofnar greiðsluferli upp á 1.000 kr.; opnaðu slóðina (url) í svarinu og greiddu með prófunarkorti.

curl -X POST https://api.kling.is/v1/checkout/sessions \
  -H "Authorization: Bearer sk_test_your_key_here" \
  -H "Content-Type: application/json" \
  -d '{
    "amount": 1000,
    "currency": "ISK",
    "success_url": "https://example.is/thanks"
  }'

Lesa allar leiðbeiningarnar

Smíðaðu með gervigreind

Ertu að smíða í Lovable, Bolt, Replit, v0, Cursor eða Claude Code? Afritaðu þessa skipun inn í tólið. Hún vísar gervigreindinni á leiðbeiningar Kling fyrir gervigreind og biður hana að velja réttu leiðina fyrir þinn rekstur.

LovableBoltReplitv0CursorClaude Code

  • MCP þjónn

    Leyfðu Claude, ChatGPT, Cursor og öðrum gervigreindarforritum að stofna greiðsluferli og greiðsluhlekki og lesa greiðslur á aðganginum þínum. Hýstur á https://api.kling.is/mcp, eða keyrðu hann hjá þér með npx @klingis/mcp.

  • CLI

    npx @klingis/cli init setur upp lyklana og webhooks. kling listen áframsendir webhooks á localhost á meðan þú forritar.

  • SDK

    @klingis/sdk er SDK fyrir bakendann. @klingis/embed opnar greiðsluglugga Kling ofan á þinni eigin síðu.

Uppsetning MCPSDK og CLIAPI skjölunOpenAPI lýsing

Verðskrá

Ekkert stofngjald og engin föst mánaðargjöld. Þú greiðir fyrir hverja greiðslu:

Kortagreiðslur á netinu: greiðsluhlekkir, áskriftir, API og greiðslugluggi
1,5%
Kortagreiðslur í gegnum Kling posa
0,8%
Kröfur í heimabanka, að lágmarki 25 kr. og að hámarki 250 kr. á kröfu
0,8%

Gjöld færsluhirðis og kostnaður bankans vegna krafna bætast við. Sjá alla verðskrána

Byrjaðu í prófunarumhverfinu í dag

Stofnaðu aðgang og fáðu prófunarlyklana þína. Það kostar ekkert og þú getur spurt okkur um hvað sem er á hallo@kling.is.