Efni

SkjölunTaktu við greiðslum

Rukkun í heimabanka (kröfur)

Með Kling sendir þú kröfur í heimabanka án þess að gera samning um kröfuþjónustu við bankann þinn og án IOBWS-tengingar, þar sem þú undirritar samning við Kling um kröfuþjónustu þegar þú sækir um að fara í loftið. Kröfurnar sendir þú úr stjórnborðinu, í greiðsluferlinu eða í gegnum API.

Krafa í heimabanka er reikningur sem birtist í heimabanka viðskiptavinarins. Hann greiðir hana eins og hvern annan reikning, án korts. Kröfur henta vel fyrir reikninga milli fyrirtækja, félagsgjöld, námskeiðsgjöld og viðskiptavini sem vilja frekar greiða í gegnum bankann. Þær eru eingöngu í íslenskum krónum.

Án forritunar

Opnaðu Rukkun í heimabanka í stjórnborðinu, sláðu inn kennitölu greiðanda, upphæð, gjalddaga og eindaga og sendu. Krafan birtist í heimabanka viðskiptavinarins og undir Kröfur í stjórnborðinu sérðu þegar hún hefur verið greidd.

Í greiðsluferlinu

Þegar kröfur hafa verið virkjaðar býður hvert greiðsluferli í krónum upp á að greiða með kröfu við hlið korta, nema þú slökkvir á því í stillingum eða ferlið setji "payment_method_type": "card". Settu "payment_method_type": "bank_claim" til að bjóða aðeins upp á kröfu (eingöngu ISK). Viðskiptavinurinn slær inn kennitölu í stað kortaupplýsinga. Framhaldið ræðst af stillingunni Krafa á greiðslusíðu í kröfustillingunum:

  • Greiðist strax, eins og kort (sjálfgefið): gjalddagi kröfunnar er í dag og greiðslusíðan bíður í um 5 mínútur á meðan viðskiptavinurinn greiðir hana í heimabankanum. Ferlinu lýkur með payment_status: "paid" þegar bankinn hefur staðfest greiðsluna og þá berst checkout.session.completed. Ef tíminn rennur út er krafan felld niður og viðskiptavinurinn getur reynt aftur eða greitt með korti.
  • Með greiðslufresti: gjalddagi er eftir 14 daga og eindagi eftir 28 daga. Ferlinu lýkur um leið og krafan er stofnuð, með payment_status: "awaiting_claim", og checkout.session.completed berst með þeirri stöðu. Þegar viðskiptavinurinn greiðir í bankanum verður greiðslan captured og payment_intent.captured webhook er sendur, með sama data.id og payment_intent_id í checkout.session.completed. Afhentu pöntunina þá, ekki fyrr.

Kröfur í gegnum Landsbankann eru alltaf með greiðslufresti. Í test-umhverfinu, með sjálfgefnu stillingunni, er hnappur á biðskjánum sem greiðir kröfuna, svo þú getur prófað allt ferlið.

Fyrir áskriftir sendir "collection_method": "bank_claim" kröfu á hverju tímabili í stað þess að rukka kort. Sjá Áskriftir.

Með API

POST /v1/claims:

bash
curl -X POST https://api.kling.is/v1/claims \
  -H "Authorization: Bearer $KLING_SECRET_KEY" \
  -H "Content-Type: application/json" \
  -H "Idempotency-Key: claim-2027-001" \
  -d '{
    "payor_kennitala": "0101302989",
    "amount": 15000,
    "due_date": 1799971200,
    "final_due_date": 1801180800
  }'
  • payor_kennitala: 10 stafa kennitala greiðanda, án bandstriks.
  • amount: heilar krónur.
  • due_date (gjalddagi) og final_due_date (eindagi): Unix-tímastimplar í sekúndum, fram í tímann. Eindagi má ekki vera á undan gjalddaga.
  • Valkvætt: customer (auðkenni viðskiptavinar), items og discount_amount. Hver lína hefur description, quantity, unit_amount og vat_rate (0, 11 eða 24), og samtala línanna, að frádregnum afslætti, á að vera jöfn amount. Athugaðu að heitin eru önnur en í línum greiðsluferlis (amount, tax_rate).

Sendu Idempotency-Key svo endurtekin beiðni sendi viðskiptavininum ekki aðra kröfu. Ekki er hægt að setja metadata á kröfu, svo geymdu id eða payment_intent sem kemur til baka með þínum eigin gögnum.

status kröfu er pending, unpaid, paid, partially_paid, cancelled eða secondary_collection. Listaðu kröfur með GET /v1/claims (síað eftir status, síðuskipting með limit og offset), sæktu eina með GET /v1/claims/{id} og felldu niður með POST /v1/claims/{id}/cancel. Webhooks claim.created og claim.paid láta þjóninn þinn vita hvað gerðist.

Uppsetning

Kling sendir kröfurnar í gegnum eigin tengingu við bankann, svo þú þarft hvorki samning um kröfuþjónustu við bankann þinn né IOBWS-tengingu. Kröfur fara heldur ekki í gegnum færsluhirði. Í umsókninni um að fara í loftið undirritar aðili sem er skráður hjá Skattinum með heimild til að skuldbinda fyrirtækið samning við Kling um kröfuþjónustu, með rafrænum skilríkjum, svo hægt er að virkja kröfur á undan kortagreiðslum. Þegar umsóknin hefur verið samþykkt sýnir stjórnborðið hvernig kröfurnar þínar líta út og spyr hvort þú viljir greiða þjónustugjald Kling með kröfu eða korti. Síðan velur þú Virkja kröfur. Sjá Úr prófunum í raunumhverfi. Leiðarvísirinn Kröfur á Íslandi fer yfir það sama fyrir rekstraraðila, án tæknimáls.

Verð

0,8% af hverri kröfu sem er send, minnst 25 kr. og mest 250 kr., auk kostnaðar bankans fyrir hverja kröfu. Gjaldið á við um allar kröfur sem eru stofnaðar, líka þær sem eru síðar felldar niður eða renna út ógreiddar. Sjá verðskrá.

Skoða sem markdown