Efni

SkjölunTaktu við greiðslum

Greiðslur, heimildir og endurgreiðslur

Hvernig greiðsla fer í gegnum Kling, frá heimild til innheimtu og endurgreiðslu, og hvernig þú rukkar vistað kort á Íslandi með payment intents API.

Hver greiðsla í Kling er payment intent, hvort sem hún hófst í greiðsluferli, greiðsluhlekk, áskrift eða beinu API-kalli. Hér er farið yfir líftíma greiðslu og hvernig þú rukkar vistað kort, innheimtir seinna og endurgreiðir.

Líftími greiðslu

Staða Merking
requires_payment_method Stofnuð, bíður eftir korti.
requires_action Viðskiptavinurinn þarf að ljúka skrefi, t.d. 3-D Secure í bankaappinu.
authorized Upphæðin er frátekin á kortinu en ekki enn tekin.
pending_settlement Samþykkt og í uppgjöri. Líttu á hana sem tókst.
captured Greidd.
awaiting_claim Krafa í heimabanka var send og bíður greiðslu.
failed Hafnað eða mistókst. Villukóðinn (code) segir hvers vegna, t.d. card_declined_insufficient_funds.
canceled Heimild var felld niður fyrir innheimtu.
partially_refunded, refunded Hluti eða öll greiðslan var endurgreidd.

Innheimta strax eða seinna

Sjálfgefið er greiðsla heimiluð og innheimt í einu skrefi. Það hentar þjónustu, stafrænum vörum og áskriftum.

Til að taka upphæðina frá fyrst og innheimta seinna, til dæmis þegar pöntun er send, býrðu til greiðsluferlið eða payment intent með "capture": false. Síðan:

  • POST /v1/payment-intents/{id}/capture innheimtir upphæðina. Sendu amount til að innheimta minna en var heimilað, til dæmis ef vara er uppseld.
  • POST /v1/payment-intents/{id}/cancel fellir heimildina niður.

Rukkaðu vistað kort

Þegar viðskiptavinur hefur vistað kort (greiðsluferli með save_payment_method, eða áskrift) geturðu rukkað það aftur án hans aðkomu:

bash
curl -X POST https://api.kling.is/v1/payment-intents \
  -H "Authorization: Bearer $KLING_SECRET_KEY" \
  -H "Content-Type: application/json" \
  -H "Idempotency-Key: renewal-2026-10-cus_123" \
  -d '{
    "amount": 2990,
    "customer": "cus_...",
    "payment_method": "pm_...",
    "description": "Mánaðarkassi, október"
  }'

Nauðsynlegt: amount, customer, payment_method. Valkvætt: currency, capture, description, statement_descriptor (allt að 22 stafir, birtist á kortayfirliti) og metadata.

Endurgreiðslur

POST /v1/payment-intents/{id}/refund endurgreiðir af innheimtri greiðslu. Slepptu amount fyrir fulla endurgreiðslu, eða sendu það fyrir hluta. Þú getur endurgreitt oftar en einu sinni, upp að því sem var greitt. Þú getur líka endurgreitt af síðu greiðslunnar í stjórnborðinu.

Færsluhirðar

Kortagreiðslur í Kling fara í gegnum Straum, Verifone eða Rapyd, eftir aðganginum þínum. Kling sækir um hjá færsluhirði fyrir þig og API-ið er það sama hver sem hann er. Apple Pay er í boði hjá Straumi og hægt að virkja hjá Verifone; Google Pay er í boði hjá Straumi.

Skoða sem markdown