Efni

SkjölunTaktu við greiðslum

Greiðsluferli í gegnum API (checkout sessions)

Greiðsluferli (checkout session) er einfaldasta leiðin til að taka við greiðslu á Íslandi með Kling. Þjónninn þinn býr það til með upphæð eða vörum og viðskiptavinurinn greiðir á greiðslusíðu Kling eða í greiðsluglugga á þinni síðu.

Greiðsluferli (checkout session) er ein greiðslutilraun eins viðskiptavinar. Þjónninn þinn býr það til með leynilyklinum; Kling skilar url fyrir greiðslusíðu og id sem þú getur opnað sem greiðsluglugga ofan á þinni eigin síðu. Kortaupplýsingar fara beint til Kling og koma aldrei við þjóninn þinn.

Búðu til greiðsluferli

POST /v1/checkout/sessions. Upphæðina má gefa upp á einn af þremur vegu (aðeins einn í einu):

Svæði Notaðu það þegar
amount Þú þarft bara að rukka upphæð, t.d. 4990 fyrir 4.990 kr.
product_id Þú selur vöru sem er skráð í Kling. Áskriftarvara stofnar áskrift.
items Þú vilt sundurliðaða kvittun: hver lína hefur product_id, eða description og amount, ásamt quantity og tax_rate (0, 11 eða 24, VSK innifalinn í upphæðinni)
bash
curl -X POST https://api.kling.is/v1/checkout/sessions \
  -H "Authorization: Bearer $KLING_SECRET_KEY" \
  -H "Content-Type: application/json" \
  -H "Idempotency-Key: order-1042" \
  -d '{
    "items": [
      { "description": "Bolur", "amount": 3990, "quantity": 2, "tax_rate": 24 }
    ],
    "currency": "ISK",
    "customer_email": "anna@example.is",
    "success_url": "https://example.is/takk",
    "cancel_url": "https://example.is/karfa",
    "metadata": { "order_id": "1042" }
  }'

Gagnleg valkvæð svæði:

  • success_url, cancel_url: hvert viðskiptavinurinn fer á eftir. Kling bætir ?session_id=... við success-slóðina.
  • locale: is eða en, tungumál greiðslusíðunnar.
  • customer_id, eða customer_email, customer_name og customer_phone til að fylla út fyrir fram.
  • promotion_code: afsláttarkóði.
  • save_payment_method: geyma kortið fyrir seinni greiðslur.
  • capture: false: taka frá upphæðina núna og innheimta seinna, sjá Greiðslur.
  • payment_method_type: card eða bank_claim (krafa í heimabanka).
  • allow_custom_amount og minimum_amount: viðskiptavinurinn velur upphæðina sjálfur.
  • metadata: þín eigin gögn, til dæmis pöntunarnúmer.

Hvað kemur til baka

Í svarinu eru meðal annars id, url, status, payment_status, amount, currency og expires_at, auk svæðanna sem þú sendir. Sendu viðskiptavininn á url, eða opnaðu ferlið í greiðsluglugganum með id.

  • status: open á meðan beðið er, complete þegar því er lokið, expired eftir 24 klukkustundir.
  • payment_status: paid, unpaid, awaiting_claim (krafa var send og viðskiptavinurinn greiðir hana í heimabankanum) eða no_payment_required.

Staðfestu greiðsluna á þjóninum

Ekki líta á það sem sönnun fyrir greiðslu að viðskiptavinurinn komi á success_url. Hlustaðu annaðhvort eftir checkout.session.completed webhook, eða sæktu ferlið með GET /v1/checkout/sessions/{id} og athugaðu payment_status. Fyrir kröfur skaltu afhenda þegar payment_intent.captured berst: þá hefur viðskiptavinurinn greitt.

GET /v1/checkout/sessions listar greiðsluferli, síað eftir status og með síðuskiptingu með limit og starting_after.

Upphæðir og gjaldmiðlar

Upphæðir eru heiltölur. Krónan hefur enga aukastafi, svo 4990 er 4.990 kr. Hægt er að virkja evrur og Bandaríkjadali fyrir aðganginn þinn; hafðu samband á hallo@kling.is.

Skoða sem markdown