SkjölunByrjaðu hér
Úr prófunum í raunumhverfi
Hvað virkar um leið og þú skráir þig hjá Kling, hvað þú þarft að gera til að taka við raunverulegum greiðslum á Íslandi og hvað ræður því hversu langan tíma það tekur.
Allt í Kling virkar í prófunarumhverfinu frá því þú skráir þig. Til að taka við raunverulegum greiðslum þarf staðfestan aðgang og, fyrir kortagreiðslur, samþykktan samning við færsluhirði. Kling sér um umsóknina fyrir þig; hér er farið yfir skrefin.
Virkar um leið og þú skráir þig
- Allt stjórnborðið: greiðsluhlekkir, áskriftir, vörur, viðskiptavinir, Kling posi og rukkun í heimabanka.
- Prófunarlykill (
sk_test_...) og allt API-ið, pakkarnir, CLI og MCP-þjónninn. - Prufugreiðslur með korti. Notaðu
4111 1111 1111 1111fyrir greiðslu sem gengur og4000 0000 0000 0002fyrir greiðslu sem er hafnað. Öll önnur 16 stafa númer ganga líka.
Til þess þarf hvorki staðfestingu, greiðslukort né samning.
Sæktu um að fara í loftið
Opnaðu stjórnborðið og veldu Fara í loftið. Í umsókninni gefur þú upp:
- hvort þú selur sem fyrirtæki eða einstaklingur, og kennitölu (upplýsingar um fyrirtækið eru sóttar út frá kennitölunni),
- nafn, heimilisfang og símanúmer, og vefsíðu ef þú selur í gegnum hana,
- bankareikninginn sem uppgjör fer inn á (þú heldur þínum banka),
- hver skrifar undir fyrir hönd fyrirtækisins,
- hvað þú selur, nákvæmlega lýst,
- áætlaða kortaveltu og meðalupphæð greiðslu.
Kortagreiðslur: samþykki færsluhirðis
Færsluhirðir er fyrirtækið sem afgreiðir sjálfa kortafærsluna. Kling sækir um hjá færsluhirði fyrir þína hönd og sér um samskiptin. Þú lýkur áreiðanleikakönnun og undirritar samninginn. Raunumhverfið opnast þegar færsluhirðir hefur samþykkt umsóknina.
Sá síðasti hluti er ekki alfarið í höndum Kling og tíminn ræðst mest af því hversu fljótt gögnin berast. Þú flýtir mest fyrir með því að:
- ljúka áreiðanleikakönnuninni strax og fá aðra prókúruhafa til að gera það sama,
- undirrita samninginn um leið og hann berst,
- lýsa starfseminni nákvæmlega, ekki í einu orði,
- ef þú selur á netinu, hafa nauðsynlegar upplýsingar á vefsíðunni (sjá hér að neðan),
- svara tölvupósti frá færsluhirði og kíkja í ruslpóstinn, því hann getur lent þar.
Þú getur alltaf spurt hvar málið stendur á hallo@kling.is.
Hvað þarf að koma fram á vefsíðunni
Færsluhirðir gerir kröfu um að allt þetta sé á síðunni áður en umsókn er samþykkt:
- lýsing á vörunni eða þjónustunni sem er seld,
- skilmálar með upplýsingum um afhendingu, endurgreiðslur og uppsögn,
- nafn fyrirtækis, kennitala, heimilisfang, símanúmer og netfang,
- persónuverndarstefna,
- í hvaða gjaldmiðli verð eru birt,
- merki Visa og Mastercard í lit þar sem greiðslumátar eru tilgreindir.
Rukkun í heimabanka
Kröfur í heimabanka fara ekki í gegnum færsluhirði. Þú undirritar samning um kröfur sem hluta af umsókninni, svo hægt er að samþykkja kröfurnar fyrst og þú getur byrjað að senda kröfur á meðan þú bíður eftir kortagreiðslum. Eftir samþykki setur þú upp kröfurnar og skráir greiðslukort fyrir þjónustugjald Kling af hverri kröfu; stjórnborðið leiðir þig í gegnum hvort tveggja. Sjá Rukkun í heimabanka.
Skiptu tengingunni yfir í raunumhverfi
- Þegar greiðslumáti hefur verið samþykktur býrðu til raunlykil (
sk_live_...) á síðunni API lyklar og skjölun. - Settu hann í stað prófunarlykilsins í umhverfisbreytum þjónsins. Annað í kóðanum breytist ekki.
- Settu webhook-endapunktinn upp aftur fyrir raunumhverfið. Webhooks í prófun og raunumhverfi eru aðskilin, með sitt hvorn undirritunarlykilinn.
- Taktu við einni lítilli raunverulegri greiðslu og endurgreiddu hana, til að sjá allt ferlið frá upphafi til enda.
Verð
Ekkert stofngjald og ekkert fast mánaðargjald; þú greiðir fyrir hverja greiðslu. Sjá verðskrá.