Efni

SkjölunFyrir forritara

API-tilvísun

Grunnreglur Kling greiðslu-API fyrir Ísland, svo sem auðkenning, prófunar- og raunlyklar, upphæðir í heilum krónum, idempotency, villur, takmörk og síðuskipting, og hvar heildarlýsing allra endapunkta er.

Gagnvirk lýsing á öllum endapunktum er á api.kling.is/docs, búin til úr OpenAPI-lýsingunni á api.kling.is/docs/json. Bentu gervigreindartólinu þínu á JSON-lýsinguna; hún er réttasta heimildin um form beiðna og svara. Hér er farið yfir það sem gildir um alla endapunkta.

Slóð og auðkenning

text
https://api.kling.is
Authorization: Bearer sk_test_...

Notaðu leynilykil af síðunni API lyklar og skjölun. sk_test_... lyklar virka í prófunarumhverfinu, sk_live_... í raunumhverfinu. Umhverfin eru alveg aðskilin: viðskiptavinir, vörur, greiðslur og webhooks blandast aldrei. Geymdu leynilykla á þjóninum.

Upphæðir

Allar upphæðir eru heiltölur í minnstu einingu gjaldmiðilsins. Krónan hefur enga aukastafi, svo 5000 er 5.000 kr. Aldrei margfalda með 100. Hægt er að virkja evrur og Bandaríkjadali (tveir aukastafir) fyrir aðganginn þinn. Verð með VSK-hlutfalli (0, 11 eða 24) eru með VSK inniföldum.

Idempotency

Sendu Idempotency-Key haus með skrifbeiðni til að mega endurtaka hana örugglega. Kling geymir svarið í 24 klukkustundir: sami lykill með sama meginmáli skilar sama svari án þess að verkið sé unnið tvisvar. Sami lykill með öðru meginmáli fær 422 idempotency_error, og ef beiðni með sama lykli er enn í vinnslu kemur 409 idempotency_conflict. Aðeins svör sem tókust eru geymd, svo misheppnaða beiðni má reyna aftur með sama lykli.

Villur

Villur hafa alltaf sama form:

json
{ "error": { "type": "invalid_request_error", "message": "...", "code": "card_declined_insufficient_funds" } }

type er authentication_error (401), validation_error (400), invalid_request_error, not_found (404) eða rate_limit_error (429). code, þegar það fylgir, er nákvæm ástæða sem þú getur brugðist við.

Takmörk

200 beiðnir á mínútu á hvern API-lykil. Að stofna greiðsluferli og payment intents er takmarkað við 30 á mínútu. Yfir mörkunum færðu 429 rate_limit_error; bíddu og reyndu aftur.

Síðuskipting

Listaendapunktar skila { "object": "list", "data": [...], "has_more": true }. Sendu limit, og starting_after með síðasta id sem þú fékkst til að sækja næstu síðu. Kröfur nota limit og offset í staðinn.

Helstu endapunktar

Slóð Hvað hún gerir
/v1/checkout/sessions Greiðsluferli, á greiðslusíðu eða í greiðsluglugga
/v1/payment-intents Greiðslur: rukka vistuð kort, innheimta, endurgreiða
/v1/payment-links Greiðsluhlekkir
/v1/products, /v1/subscriptions Áskriftir
/v1/billing-portal/sessions Innheimtugátt viðskiptavina
/v1/claims Kröfur í heimabanka
/v1/customers, /v1/payment-methods Viðskiptavinir og vistuð kort þeirra
/v1/coupons, /v1/promotion-codes Afslættir
/v1/notification-channels Webhooks
/v1/kling.js Skriftan fyrir greiðslugluggann í vafranum

Skoða sem markdown