SkjölunFyrir forritara
Pakkar og tól
Pakkar Kling fyrir forritara á Íslandi. @klingis/sdk fyrir þjóninn, @klingis/embed fyrir vafrann, @klingis/cli til að setja upp verkefni með einni skipun og @klingis/mcp fyrir gervigreindarfulltrúa.
Kling er með fjóra npm-pakka. Þeir virka allir strax með prófunarlykli.
| Pakki | Hvað hann er |
|---|---|
@klingis/sdk |
SDK með týpum fyrir Kling API, búið til úr OpenAPI-lýsingunni |
@klingis/embed |
Greiðsluglugginn: greiðslusíða ofan á þinni síðu |
@klingis/cli |
Tengir verkefni við Kling með einni skipun |
@klingis/mcp |
MCP-þjónn fyrir gervigreindarfulltrúa |
@klingis/cli
npx @klingis/cli initinit skráir þig inn (eða stofnar aðgang), greinir hvaða ramma þú notar (Next.js, Remix, Astro, Express, Hono, Elysia eða hreint HTML), spyr hvað þú ert að smíða, getur skráð webhook, skrifar KLING_SECRET_KEY, KLING_API_URL og KLING_WEBHOOK_SECRET í .env.local (og bætir því í .gitignore) og skrifar KLING_INTEGRATION.md, skipun fyrir gervigreindartólið þitt.
Aðrar skipanir: kling status, kling login, kling login --api-key <key> (fyrir CI), kling logout, kling env [live|test] og kling listen --forward <url>. Með npx skrifar þú npx @klingis/cli status og svo framvegis.
@klingis/sdk
npm install @klingis/sdkimport { configure, postV1CheckoutSessions } from "@klingis/sdk";
configure({
baseUrl: "https://api.kling.is",
headers: { Authorization: `Bearer ${process.env.KLING_SECRET_KEY}` },
});
const res = await postV1CheckoutSessions({
amount: 5000, // 5.000 kr.
currency: "ISK",
success_url: "https://example.is/takk",
});
if (res.status === 200) console.log(res.data.id, res.data.url);Föllin heita eftir aðferð og slóð: POST /v1/checkout/sessions er postV1CheckoutSessions, GET /v1/customers/{id} er getV1CustomersById. Hvert þeirra skilar { data, status, headers }. SDK-ið notar fetch og keyrir í Bun og í þjónakóða sem fer í gegnum bundler (Next.js, Remix, SvelteKit, Vite). Í hreinu Node ESM án bundler skaltu kalla beint á REST API-ið með fetch.
@klingis/embed
npm install @klingis/embedEða <script src="https://api.kling.is/v1/kling.js"></script>. Sjá Greiðslugluggi.
@klingis/mcp
Leyfir gervigreindarfulltrúum eins og Claude, ChatGPT og Cursor að vinna með Kling aðganginn þinn. Sjá MCP-þjónn.