SkjölunTaktu við greiðslum
Áskriftir og innheimtugátt
Rukkaðu viðskiptavini á Íslandi sjálfkrafa vikulega, mánaðarlega eða árlega með áskriftum í Kling, reyndu aftur þegar greiðsla mistekst og leyfðu viðskiptavinum að sjá um eigin áskrift í innheimtugáttinni.
Áskrift tengir viðskiptavin við vöru sem er rukkuð reglulega og innheimtir sjálfkrafa á hverju tímabili. Kling reynir aftur þegar greiðsla mistekst og heldur skrá yfir hverja greiðslu. Viðskiptavinir sjá sjálfir um áskriftina sína í innheimtugáttinni.
Án forritunar
- Í stjórnborðinu opnar þú Vörur og býrð til áskriftarvöru með verði og tímabili (vika, mánuður eða ár), og prufutíma ef þú vilt.
- Opnaðu Greiðsluhlekkir og búðu til hlekk með vörunni. Það er áskriftarhlekkurinn þinn.
- Deildu honum. Viðskiptavinurinn skráir sig og greiðir fyrsta tímabilið með korti, og Kling rukkar kortið í byrjun hvers nýs tímabils.
Með API
Búðu til vöru og sendu svo viðskiptavininn í gegnum greiðsluferli með product_id vörunnar (hann slær inn kortið og áskriftin hefst), eða stofnaðu áskriftina beint fyrir viðskiptavin sem á vistað kort:
curl -X POST https://api.kling.is/v1/subscriptions \
-H "Authorization: Bearer $KLING_SECRET_KEY" \
-H "Content-Type: application/json" \
-d '{
"customer_id": "cus_...",
"product_id": "prod_...",
"payment_method_id": "pm_..."
}'collection_method er card (sjálfgefið) eða bank_claim, sem sendir kröfu í heimabanka á hverju tímabili í stað þess að rukka kort.
Aðrir endapunktar: POST /v1/subscriptions/{id}/cancel, POST /v1/subscriptions/{id}/reactivate og POST eða DELETE /v1/subscriptions/{id}/discount.
Líftími áskriftar
| Staða | Merking |
|---|---|
trialing |
Á prufutíma. Verður active þegar fyrsta greiðslan tekst. |
active |
Greidd og endurnýjast. |
past_due |
Endurnýjun mistókst og Kling reynir aftur. |
canceled |
Lokið, eftir uppsögn eða þegar allar tilraunir mistókust. |
Þegar endurnýjun mistekst reynir Kling aftur 1, 3 og 7 dögum eftir hverja fyrri tilraun (þrjár tilraunir). Ef tilraun tekst fer áskriftin aftur í active; ef allar mistakast er henni sagt upp.
Sjálfgefið tekur uppsögn gildi í lok yfirstandandi tímabils, svo viðskiptavinurinn heldur því sem hann greiddi fyrir; þangað til sýnir áskriftin cancel_at_period_end: true. Til að ljúka henni strax sendir þú "cancel_immediately": true.
Hver greiðsla hefur billing_reason, subscription_create (sú fyrsta) eða subscription_cycle (endurnýjun), svo þú veist alltaf hvað var rukkað og hvers vegna. Webhooks subscription.renewed, subscription.payment_failed og subscription.canceled láta þjóninn þinn vita hvað gerðist.
Innheimtugátt
Innheimtugáttin er síða þar sem viðskiptavinurinn sér áskriftina sína og nýlegar greiðslur, uppfærir kortið, segir upp og virkjar aftur. Búðu til gáttarsetu og sendu viðskiptavininn á url hennar:
curl -X POST https://api.kling.is/v1/billing-portal/sessions \
-H "Authorization: Bearer $KLING_SECRET_KEY" \
-H "Content-Type: application/json" \
-d '{ "customer": "cus_...", "return_url": "https://example.is/adgangur" }'Valkostir: subscription (takmarka við eina áskrift), allow_cancel og allow_update_payment_method (bæði sjálfgefið á) og expires_in í sekúndum (sjálfgefið 1800).