Efni

SkjölunTaktu við greiðslum

Greiðsluhlekkir

Fáðu greitt á Íslandi án vefsíðu og án forritunar. Búðu til greiðsluhlekk í stjórnborði Kling og sendu hann í tölvupósti, SMS eða á samfélagsmiðlum, eða búðu til hlekki í gegnum API.

Greiðsluhlekkur er greiðslusíða með föstu verði sem þú getur deilt hvar sem er: í tölvupósti, SMS, Messenger, sem QR-kóða eða sem hnapp á síðunni þinni. Viðskiptavinurinn opnar hann og greiðir með korti. Engin vefsíða og engin forritun.

Búðu til hlekk í stjórnborðinu

  1. Skráðu þig inn á kling.is/dashboard.
  2. Opnaðu Greiðsluhlekkir og búðu til nýjan hlekk.
  3. Bættu við því sem þú selur: lýsingu, verði og magni í hverri línu.
  4. Veldu hvað viðskiptavinurinn þarf að gefa upp (nafn, netfang, síma, kennitölu) og, ef þú vilt, hversu oft má nota hlekkinn og hvenær hann rennur út.
  5. Deildu hlekknum.

Hver greiðsla birtist undir Greiðslur í stjórnborðinu.

Búðu til hlekk með API

POST /v1/payment-links:

bash
curl -X POST https://api.kling.is/v1/payment-links \
  -H "Authorization: Bearer $KLING_SECRET_KEY" \
  -H "Content-Type: application/json" \
  -d '{
    "name": "Sumarnámskeið 2026",
    "items": [
      { "description": "Námskeiðsgjald", "quantity": 1, "unit_amount": 25000, "vat_rate": 0 }
    ],
    "collect_name": true,
    "collect_national_id": true,
    "max_uses": 40
  }'
  • items (nauðsynlegt): hver lína með description, quantity, unit_amount (í minnstu einingu gjaldmiðilsins; ISK hefur enga) og vat_rate (0, 11 eða 24). Bættu við product_id til að tengja línu við vöru, til dæmis áskriftarvöru; hinir fjórir reitirnir eru samt nauðsynlegir.
  • max_uses: 1 fyrir hlekk sem má nota einu sinni, önnur tala fyrir hámark, slepptu fyrir ótakmarkað.
  • expires_at: Unix-tímastimpill þegar hlekkurinn hættir að virka.
  • collect_name, collect_email, collect_phone, collect_national_id: hvað viðskiptavinurinn þarf að fylla út. Netfang er sjálfgefið á, hitt er sjálfgefið af.
  • allow_promotion_codes, save_payment_method, success_url, cancel_url, metadata.

Í svarinu er url hlekksins. Þú getur líka listað (GET /v1/payment-links), sótt, breytt (PATCH), gert óvirka (POST /v1/payment-links/{id}/deactivate) og virkjað aftur (POST /v1/payment-links/{id}/activate). DELETE eyðir hlekk endanlega: ekki er hægt að virkja hann aftur.

Hver greiðsla í gegnum hlekk er greiðsluferli, svo þjónninn þinn fréttir af henni með sömu webhooks og af hverju öðru greiðsluferli. Ef þú hefur kveikt á kröfum býður hlekkurinn þær líka.

Áskriftir og aðrar upphæðir

  • Settu áskriftarvöru á hlekk og hann verður að áskriftarhlekk: viðskiptavinurinn er rukkaður á hverju tímabili. Sjá Áskriftir.
  • Greiðsluhlekkur er með föstu verði. Fyrir styrki og frjáls framlög, sjá framlög.

Skoða sem markdown