Algengar spurningar
Svör við því sem viðskiptavinir spyrja okkur oftast um, allt frá því hvað Kling kostar til þess hvernig uppgjör virkar. Allt hér byggir á raunverulegum spurningum sem bárust á hallo@kling.is.
Verð og gjöld
Spurningar: 4
Hvað kostar að nota Kling?
Þú greiðir aðeins þegar greiðsla fer í gegn. Ekkert stofngjald, ekkert mánaðargjald og ekkert fast gjald.
- Kortagreiðslur í gegnum Kling posa
- 0,8%
- Kortagreiðslur í gegnum greiðsluhlekki, áskriftir, greiðsluglugga eða API
- 1,5%
- Rukkun í heimabanka
- 0,8%
Gjald fyrir rukkun í heimabanka er að lágmarki 25 kr. og að hámarki 250 kr. á hverja kröfu.
Gjöld færsluhirðis bætast við gjöld Kling fyrir kortagreiðslur og bankakostnaður við gjöld Kling fyrir kröfur í heimabanka.
Er mánaðargjald, stofngjald eða uppsagnarfrestur?
Nei. Þú borgar ekkert fyrir að vera með aðgang, ekkert fyrir að setja kerfið upp og ekkert þótt þú notir það ekki í einhvern tíma.
Þetta hentar vel þeim sem selja óreglulega, til dæmis á viðburðum eða yfir háannatíma.
Af hverju eru gjöld færsluhirðis ekki innifalin í verðinu?
Færsluhirðir er sá aðili sem sér um sjálfa kortafærsluna og hann gerir sérstakan samning við hvert fyrirtæki. Kjörin ráðast meðal annars af veltu, tegund reksturs og hlutfalli erlendra korta, svo eitt verð fyrir alla myndi ekki endurspegla mismunandi kjör.
Kling semur við færsluhirðinn fyrir þína hönd og þú nýtur þeirra kjara sem við höfum samið um. Þú færð upplýsingar um kjörin áður en þú skrifar undir.
Við erum með mikla veltu. Fáum við önnur kjör?
Já. Sé ársveltan yfir 100 milljónum króna setjum við saman sérsniðinn pakka með bestu kjörum sem við getum boðið. Sendið okkur línu á hallo@kling.is.
Að byrja
Spurningar: 7
Hvað þarf ég að gera til að byrja?
- Skráðu þig á kling.is. Það tekur nokkrar mínútur.
- Prófaðu kerfið strax í prófunarumhverfinu, án þess að raunverulegar greiðslur fari fram.
- Sæktu um að virkja móttöku greiðslna í kerfinu. Við sendum þér áreiðanleikakönnun og samning til undirritunar.
- Þegar færsluhirðir hefur samþykkt umsóknina opnast raunumhverfið og þú getur byrjað að taka við greiðslum.
Hversu langan tíma tekur að geta tekið við greiðslum?
Prófunarumhverfið er opið um leið og þú skráir þig, svo þú getur sett allt upp og prófað strax.
Raunumhverfið opnast þegar færsluhirðir hefur samþykkt umsóknina. Sá hluti er ekki alfarið í okkar höndum og tíminn ræðst mest af því hversu fljótt gögnin berast. Þú flýtir mest fyrir með því að:
- ljúka áreiðanleikakönnuninni strax og láta prókúruhafa gera slíkt hið sama
- undirrita samninginn þegar hann berst
- lýsa starfseminni nákvæmlega, ekki bara í einu orði
- ganga frá upplýsingum á vefsíðunni (sjá næstu spurningu)
- svara tölvupósti frá færsluhirði og athuga ruslpóstmöppuna, því pósturinn getur lent þar
Þú getur hvenær sem er fengið upplýsingar hjá okkur um stöðu málsins. Sendu okkur bara línu á hallo@kling.is.
Hvað þarf að koma fram á vefsíðunni minni?
Færsluhirðir gerir kröfu um að eftirfarandi sé aðgengilegt á síðunni áður en hún er samþykkt:
- lýsing á vörunni eða þjónustunni sem verið er að selja
- skilmálar með upplýsingum um afhendingu, endurgreiðslur og uppsögn
- nafn fyrirtækis, kennitala, heimilisfang, símanúmer og netfang
- persónuverndarstefna
- upplýsingar um í hvaða gjaldmiðli er verðlagt
- merki Visa og Mastercard í lit þar sem greiðslumátar eru tilgreindir
Lýsingin á starfseminni þarf að vera nákvæm. „Þjónusta“ dugar ekki, en „fjögurra vikna netnámskeið í stærðfræði fyrir framhaldsskólanema, afhent í gegnum kennsluvef“ dugar vel.
Hver sér um samninginn við færsluhirði?
Kling sækir um hjá færsluhirði fyrir þína hönd og sér um samskiptin. Þú þarft að ljúka áreiðanleikakönnuninni sem við sendum þér og undirrita samninginn.
Þarf ég að skipta um viðskiptabanka?
Nei. Þú heldur áfram hjá þínum banka og uppgjörið fer inn á núverandi reikning.
Þarf ég að kunna að forrita?
Nei. Greiðsluhlekki, áskriftarhlekki, Kling posa og rukkun í heimabanka geturðu sett upp í mælaborðinu án forritunar.
Ef þú vilt tengja Kling beint við eigið kerfi geturðu notað forritaskil (API) og greiðsluglugga. Til þess þarf forritun.
Get ég prófað áður en ég fer í loftið?
Já. Hver aðgangur hefur tvö aðskilin umhverfi: prófunarumhverfi og raunumhverfi. Í prófunarumhverfinu geturðu búið til vörur, hlekki og áskriftir og prófað greiðslur með prófunarkortum, án þess að peningar séu færðir milli aðila.
Athugaðu að umhverfin eru aðskilin. Vörur, viðskiptavinir og áskriftir sem þú býrð til í prófunarumhverfinu flytjast ekki sjálfkrafa yfir í raunumhverfið.
Greiðsluleiðir
Spurningar: 5
Hvaða greiðsluleiðir eru í boði?
- Greiðsluhlekkur. Þú býrð hann til í mælaborðinu og deilir honum hvar sem er.
- Greiðsluglugginn. Greiðsluglugginn opnast yfir vefsíðunni þinni og viðskiptavinurinn greiðir án þess að yfirgefa hana.
- Kling posi. Þú rukkar á staðnum úr símanum eða tölvunni, án sérstaks posabúnaðar.
- Rukkun í heimabanka. Krafa er send beint í heimabanka viðskiptavinarins.
- API. Full stjórn fyrir þá sem vilja útfæra eigið greiðsluferli.
Hvernig bý ég til greiðsluhlekk?
Farðu í Greiðsluhlekkir í mælaborðinu og veldu Nýr hlekkur. Veldu vöru eða upphæð, vistaðu og afritaðu slóðina.
Hlekkinn má setja hvar sem er: á vefsíðu, í tölvupóst, í SMS, á samfélagsmiðla eða í QR-kóða. Þú getur haft hann opinn, takmarkað fjölda skipta sem má nota hann eða látið hann renna út á tilteknum degi.
Get ég notað QR-kóða?
Kling posinn sýnir QR-kóða sem viðskiptavinurinn skannar, og söfnunarsíðu má deila sem QR-kóða. Venjulegur greiðsluhlekkur er veffang sem þú sendir.
Hann hentar til dæmis á veggspjöld og borðstanda, á sölubása á mörkuðum eða í stað söfnunarkassa.
Er Apple Pay eða Google Pay í boði?
Apple Pay birtist sem sérstök greiðsluleið í Apple-tækjum sem styðja það. Það fer eftir greiðsluveitunni þinni: það er í boði hjá Straumi, þarf að vera kveikt á því fyrir þig hjá Verifone og er ekki í boði hjá Rapyd.
Google Pay er í boði hjá Straumi. Það er ekki í boði hjá Verifone eða Rapyd.
Get ég rukkað í evrum eða dölum?
Já. Kling styður íslenskar krónur, evrur og dali. Við sjáum um að virkja hvern gjaldmiðil á aðgangnum þínum. Að því loknu geturðu bæði verðlagt og gert upp í viðkomandi gjaldmiðli.
Rukkun í heimabanka er þó eingöngu í íslenskum krónum.
Vefsíður og verslunarkerfi
Spurningar: 4
Virkar Kling með WooCommerce?
Já. Við erum með tilbúna viðbót fyrir WooCommerce. Þú setur hana upp og slærð inn API-lykilinn þinn til að taka við íslenskum kortagreiðslum.
Engin forritun er nauðsynleg og uppsetningin tekur um fimm mínútur.
Virkar Kling með Shopify?
Já, með greiðsluhlekkjum. Þú býrð til hlekk í Kling og setur hann sem hnapp eða tengil á Shopify-síðuna.
Bein tenging við greiðsluferli Shopify er ekki í boði enn. Þegar áskrift endurnýjast stofnast því ekki sjálfkrafa ný pöntun í Shopify. Ef þú selur vöru í áskrift sem þarf að senda við hverja endurnýjun þarf að leysa þann hluta sérstaklega. Hafðu samband og við förum yfir það með þér.
Virkar Kling með Squarespace, Wix eða öðru vefsíðukerfi?
Já. Greiðsluhlekkir virka á hvaða vefsíðu sem er, óháð því í hvaða kerfi hún er byggð. Þú setur hlekkinn inn sem hnapp eða tengil.
Ef þú vilt að viðskiptavinurinn greiði án þess að fara yfir á aðra síðu geturðu notað greiðsluglugga Kling. Hann opnast yfir vefsíðunni þinni. Uppsetningin krefst forritunar: þjónninn þinn býr til greiðslulotuna með leynilyklinum þínum áður en glugginn opnast.
Þarf ég eigin vefþjón?
Nei, ekki fyrir greiðsluhlekki, Kling posann eða kröfur í heimabanka. Greiðsluglugginn er undantekningin: hann þarf þinn eigin þjón til að búa til greiðslulotuna.
Já, ef þú vilt búa til greiðslur sjálfvirkt í gegnum API, því þá þarf að geyma API-lykilinn á öruggum stað.
Áskriftir
Spurningar: 4
Styður Kling áskriftir?
Já. Endurteknar greiðslur eru innbyggðar. Þú velur hversu oft er innheimt, til dæmis mánaðarlega eða árlega. Kortaupplýsingar eru vistaðar svo hægt sé að innheimta greiðslurnar sjálfkrafa.
Áskriftir má líka innheimta með kröfu í heimabanka í stað korts.
Hvernig set ég upp áskrift?
- Búðu til vöru í mælaborðinu og veldu að hún sé áskrift.
- Stilltu verð, tíðni, VSK og prufutímabil ef þú vilt bjóða slíkt.
- Greiðsluhlekkur verður til sjálfkrafa. Settu hann á hnapp á síðunni þinni, til dæmis „Gerast áskrifandi“.
- Viðskiptavinurinn lýkur greiðslunni og kortaupplýsingar eru vistaðar fyrir næstu greiðslur.
Geta viðskiptavinir sagt upp sjálfir?
Já. Innheimtugáttin er sjálfsafgreiðslusíða þar sem viðskiptavinurinn sér áskriftina sína, getur uppfært kortaupplýsingar og sagt upp áskriftinni.
Hver hlekkur er búinn til fyrir einn viðskiptavin og rennur út, svo það er ekkert fast veffang til að setja á vefinn þinn. Sendu viðskiptavininum nýjan hlekk þegar hann biður um það.
Get ég boðið mismunandi pakka eða látið viðskiptavininn velja magn?
Þú getur boðið eins marga pakka og þú vilt. Hver áskrift er bundin við eina tiltekna vöru, þannig að til dæmis „3 stykki á mánuði“ og „6 stykki á mánuði“ eru tvær vörur og tveir hlekkir. Viðskiptavinurinn velur pakka með því að smella á réttan hlekk.
Ef þú vilt að viðskiptavinurinn geti sjálfur valið magn og tíðni á vörusíðunni þinni og fengið eina samsetta áskrift þarf að útfæra það með API-tengingu. Hafðu samband og við bendum þér á réttu leiðina.
Rukkun í heimabanka
Spurningar: 4
Hvað er rukkun í heimabanka og hvenær hentar hún?
Krafa er stofnuð á kennitölu viðskiptavinarins og birtist í heimabankanum hans, líkt og hefðbundinn greiðsluseðill.
Hún hentar vel fyrir félagsgjöld, námskeiðsgjöld, reikninga milli fyrirtækja og alla þá viðskiptavini sem vilja frekar greiða í heimabankanum en með korti.
Þú getur sent kröfur úr mælaborðinu eða sjálfvirkt í gegnum API. Þú getur líka notað þær til að innheimta áskriftir.
Hvað kostar rukkun í heimabanka?
0,8% af upphæð kröfunnar, að lágmarki 25 kr. og að hámarki 250 kr. Bankakostnaður bætist við samkvæmt verðskrá bankans.
Fyrir hærri upphæðir er þetta oft ódýrasta leiðin, því gjald Kling fer aldrei yfir 250 kr. á hverja kröfu. Bankakostnaður bætist við.
Get ég bætt seðilgjaldi við kröfuna?
Já. Þú ákveður seðilgjaldið í stillingum fyrir kröfur og þá leggst það sjálfkrafa ofan á hverja kröfu sem þú sendir.
Ef þú vilt ekki innheimta seðilgjald skilurðu reitinn eftir auðan. Gjaldið er þá 0 kr.
Af hverju sjá viðskiptavinir mínir gjalddaga og eindaga á sama degi?
Bankarnir birta þetta ekki allir eins, svo í sumum heimabönkum líta dagsetningarnar út fyrir að vera þær sömu.
Þetta þýðir ekki að krafan sé komin í innheimtu og enginn aukakostnaður fellur á viðskiptavininn.
Uppgjör, endurgreiðslur og kvittanir
Spurningar: 5
Hvenær fæ ég peninginn inn á reikninginn minn?
Uppgjörið kemur frá færsluhirði beint inn á bankareikninginn sem þú skráðir. Kling heldur ekki peningunum þínum.
Hversu oft er gert upp við þig ræðst af samningnum þínum við færsluhirði og er ekki eins hjá öllum. Ef eitthvað er óljóst, eða greiðsla virðist aldrei hafa skilað sér, sendu okkur línu á hallo@kling.is og við flettum því upp fyrir þig.
Koma greiðslur inn hver fyrir sig eða margar saman?
Færsluhirðir gerir yfirleitt upp margar kortagreiðslur saman í einni færslu inn á reikninginn þinn, frekar en hverja greiðslu sér.
Sundurliðunina, það er hverjir greiddu og hversu mikið, sérðu alltaf í mælaborðinu. Það skiptir máli fyrir félög sem þurfa að halda utan um einstaka greiðendur, til dæmis vegna upplýsingagjafar til Skattsins.
Get ég endurgreitt viðskiptavini?
Já. Þú getur endurgreitt bæði að fullu og að hluta í mælaborðinu eða í gegnum API.
Fá viðskiptavinir kvittun sjálfkrafa?
Já, þegar netfang er skráð í greiðsluferlinu. Ef ekki er beðið um netfang á greiðslusíðu hlekksins er engin kvittun send. Mundu því að virkja netfangsreitinn ef senda á kvittun.
Þú getur hvenær sem er sótt kvittun fyrir hverja greiðslu í mælaborðinu.
Birtist VSK á kvittuninni?
Já. Ef VSK-hlutfall hefur verið skráð á vöruna birtist sundurliðun á kvittuninni.
Félög, styrkir og viðburðir
Spurningar: 3
Get ég tekið við frjálsum framlögum og styrkjum?
Já. Með Frjálsum greiðslum býrðu til greiðslusíðu og ákveður hvaða upphæðir birtast á henni. Styrktaraðilinn getur valið eina þeirra eða slegið inn upphæð að eigin vali og greitt með korti. Þú getur deilt síðunni með QR-kóða, á samfélagsmiðlum eða í auglýsingum.
Þú getur líka boðið upp á mánaðarlegan stuðning. Þá eru kortaupplýsingarnar geymdar og framlagið innheimt sjálfkrafa í hverjum mánuði. Þú getur sent styrktaraðila hlekk í innheimtugáttina svo hann geti uppfært kortið sitt eða hætt stuðningnum; til að breyta upphæðinni hefur hann samband við þig.
Þarf félagið að vera skráð á Almannaheillaskrá?
Nei, það er ekki skilyrði. Það sem þarf er skýr lýsing á því til hvaða málefnis eða verkefnis peningarnir renna, bæði í skráningu félagsins og á síðunni sjálfri.
Get ég selt miða á viðburð og takmarkað fjöldann?
Já. Með Viðburðum stillirðu hámarksfjölda þátttakenda og skráning lokast sjálfkrafa þegar honum er náð.
Þú getur sett verð á viðburðinn og sérstakt verð fyrir félagsmenn, og haldið utan um dagsetningar og mætingu á sama stað.
Fyrir forritara
Spurningar: 4
Eru forritaskil (API) og skjölun í boði?
Já. Forritaskilin eru á api.kling.is og skjölunin á api.kling.is/docs. Þar finnurðu upplýsingar um greiðslur, áskriftir, viðskiptavini, kröfur, afsláttarkóða og fleira.
Við bjóðum líka upp á vafra-SDK fyrir greiðsluglugga og pakka á npm fyrir bakendatengingar.
Eruð þið með tengingu við gervigreindarverkfæri?
Já. Kling er með MCP-tengingu sem virkar með Claude og sambærilegum verkfærum og OpenAPI-skjölun sem kóðaritlar með gervigreind, eins og Cursor, geta lesið beint.
Margir viðskiptavinir okkar hafa tengt Kling við sitt eigið kerfi án þess að vera forritarar að mennt.
Get ég fengið tilkynningar um greiðslur í kerfið mitt?
Já. Þú skráir slóð undir Tilkynningar í mælaborðinu og færð meðal annars tilkynningar þegar greiðsla tekst eða mistekst og þegar áskrift endurnýjast.
Allar tilkynningar eru undirritaðar svo þú getir staðfest að þær komi frá okkur.
Get ég verið með fleiri en eitt fyrirtæki eða fleiri en eina vefsíðu á sama aðgangi?
Já. Þú getur verið með fleiri en einn söluaðila undir sama notanda og skipt á milli þeirra í mælaborðinu.
Hver söluaðili hefur sína eigin lykla, sínar vörur og sitt uppgjör.
Annað
Spurningar: 2
Get ég rekið markaðstorg eða skipt greiðslu sjálfkrafa milli tveggja aðila?
Nei, ekki eins og er. Ein kortafærsla getur ekki skipst sjálfkrafa milli tveggja kennitalna og uppgjörið fer alltaf til eins viðtakanda.
Það eru þó aðrar leiðir til að haga þessu. Algengast er að hver aðili sé með sinn eigin Kling-aðgang, þannig að hver aðili fái sitt uppgjör beint, eða að einn aðili taki við greiðslunni og geri upp við hinn eftir á með kröfu eða áskrift. Hafðu samband og við förum yfir hvað hentar.
Hvernig næ ég í ykkur?
Sendu okkur línu á hallo@kling.is eða spjallaðu við okkur beint á kling.is.
Við svörum á íslensku og það er alltaf manneskja hinum megin.
Fannstu ekki svarið?
Sendu okkur línu og manneskja svarar, á íslensku, oftast samdægurs.