SkjölunMeð gervigreind
Taktu við greiðslum í Lovable
Hvernig þú tekur við kortagreiðslum í Lovable-forriti á Íslandi með Kling. Geymdu lykilinn sem Supabase secret, límdu inn eina skipun og prófaðu með prufukorti.
Stripe tekur ekki við íslenskum fyrirtækjum, svo innbyggða Stripe-tenging Lovable gengur ekki hér. Kling er greiðslulausn fyrir Ísland sem virkar á sama hátt: bakendi forritsins býr til greiðsluferli og viðskiptavinurinn greiðir í glugga eða á greiðslusíðu Kling. Í Lovable keyrir bakendinn sem Supabase Edge Functions.
1. Náðu í prófunarlykil
Skráðu þig á kling.is/signup og afritaðu prófunarlykilinn (sk_test_...) af síðunni API lyklar og skjölun. Prófunarlyklar virka strax og engir raunverulegir peningar fara á milli.
2. Geymdu lykilinn sem secret
Leynilykillinn má aldrei vera í framendakóðanum. Tengdu Lovable-verkefnið við Supabase og bættu við secret sem heitir KLING_SECRET_KEY með prófunarlyklinum, í Supabase undir Edge Functions og secrets. Lovable getur líka beðið þig um hann þegar það smíðar fallið.
3. Límdu þessa skipun inn í Lovable
Bættu Kling greiðslum við þetta forrit. Kling (kling.is) er greiðslulausn fyrir Ísland. Lestu https://kling.is/docs/lovable.md og https://kling.is/docs/embedded-checkout.md áður en þú byrjar.
1. Búðu til Supabase Edge Function "kling-checkout" sem kallar á POST https://api.kling.is/v1/checkout/sessions með hausnum "Authorization: Bearer <KLING_SECRET_KEY úr secrets fallsins>" og JSON með upphæðinni og "currency": "ISK". Skilaðu id greiðsluferlisins. Upphæðir eru heilar krónur (5000 þýðir 5.000 kr.); aldrei margfalda með 100.
2. Í framendanum skaltu setja upp @klingis/embed. Þegar viðskiptavinurinn smellir á Greiða kallar þú á fallið og opnar greiðslugluggann með Kling.init({ locale: "is" }) og kling.checkout({ sessionId }).
3. Búðu til annað Edge Function, "kling-webhook", sem tekur við webhooks frá Kling. Staðfestu X-Kling-Signature hausinn: hann er "sha256=" og á eftir HMAC-SHA256 af hráu meginmáli beiðninnar, í hex, með KLING_WEBHOOK_SECRET sem lykil. Við checkout.session.completed merkir þú pöntunina greidda.
4. Settu leynilykilinn aldrei í framendakóða.4. Prófaðu
Greiddu með prufukortinu 4111 1111 1111 1111, hvaða gildistíma sem er fram í tímann og hvaða CVC sem er. 4000 0000 0000 0002 sýnir greiðslu sem er hafnað.
5. Webhooks
Bættu við webhook í stjórnborðinu undir Tilkynningar sem bendir á slóð kling-webhook fallsins, með atburðinum checkout.session.completed. Afritaðu undirritunarlykilinn í Supabase secret sem heitir KLING_WEBHOOK_SECRET. Sjá Webhooks.
Í loftið
Þegar aðgangurinn þinn hefur verið samþykktur fyrir raunverulegar greiðslur býrðu til raunlykil og setur hann í KLING_SECRET_KEY. Sjá Úr prófunum í raunumhverfi.