Eitt verð fyrir alla
Hjá Kling er enginn uppsetningarkostnaður, ekkert mánaðargjald og engin skuldbinding. Þú greiðir aðeins þegar þú færð greitt.
Staðlað
Skráðu þig og byrjaðu í dag.
Kortagreiðslur á netinu
Greiðslugluggi, greiðsluhlekkir, áskriftir og API
1,5%
Kortagreiðslur í Kling posanum
Í Kling-appinu, við afgreiðsluborðið. Kassakerfið er í beta-prófun.
0,8%
Kröfur í heimabanka
Að lágmarki 25 kr. og að hámarki 250 kr. á kröfu
0,8%
Gjöld færsluhirðis og kröfugjöld banka bætast við. Einnig getur þurft að greiða stofngjald við gerð samnings við færsluhirði.
Prófunarumhverfið opnast um leið og þú skráir þig.
Sérsniðið
Fyrir fyrirtæki sem gera ráð fyrir að 45 milljónir króna eða meira fari í gegnum Kling á ári, eða hafa sérstakar þarfir.
- Magnkjör
- Fastur tengiliður
- Aðstoð við flutning úr öðru kerfi
- Sérsniðnar lausnir
Þrjár stuttar spurningar. Svörum innan 24 klukkustunda á virkum dögum.
Innifalið í stöðluðum kjörum
- Greiðslugluggi og greiðslusíður
- Greiðsluhlekkir
- Áskriftir með sjálfvirkum endurtilraunum
- Kröfur án eigin samnings við banka
- Mínar síður fyrir viðskiptavini þína
- Apple Pay og Google Pay
- Vörur fyrir staka sölu og áskriftir
- API, vefköll og prófunarumhverfi
- Félagaskrár, viðburðir og ferðir
- Skýrslur og útflutningur gagna
- Við sjáum um umsóknina til færsluhirðis
- Skiptu um færsluhirði án þess að breyta neinu
Fjármunirnir fara aldrei í gegnum Kling. Færsluhirðirinn eða bankinn sér um að greiða beint inn á reikninginn þinn.