Efni

SkjölunMeð gervigreind

Taktu við greiðslum í v0

Hvernig þú tekur við kortagreiðslum í Next.js-forriti sem er smíðað í v0 á Íslandi með Kling. Afritaðu eina skipun inn í v0, bættu leynilyklinum við sem umhverfisbreytu og prófaðu með prufukorti.

Fljótlegast: láttu gervigreindina vinna verkið

Afritaðu skipunina og límdu hana í ChatGPT, Claude, Cursor, Lovable eða annað gervigreindartól. Það les leiðbeiningarnar okkar, spyr út í reksturinn og velur rétta leið.

Þú getur tekið við greiðslum í v0-forriti á Íslandi með Kling, greiðslulausn fyrir Ísland sem tekur við kortum, Apple Pay og Google Pay í íslenskum krónum. Stripe tekur ekki við íslenskum fyrirtækjum, og Kling hentar vel Next.js-forritunum sem v0 smíðar: route handler á þjóninum býr til greiðsluferli og viðskiptavinurinn greiðir án þess að fara af síðunni.

Hvað v0 smíðar

v0 bætir route handler við Next.js-forritið sem býr til greiðsluferli þegar viðskiptavinur smellir á Greiða. Hann keyrir á þjóninum, svo hann má nota leynilykilinn þinn, og sendir upphæðina í heilum krónum (5000 þýðir 5.000 kr.). Svo opnar client component greiðslugluggann ofan á síðunni, eða sendir viðskiptavininn á greiðslusíðu Kling og aftur til baka. Kortaupplýsingarnar fara beint til Kling og koma aldrei við í forritinu.

Annar route handler tekur við webhooks. Kling kallar á hann þegar greiðsluferli lýkur og hann staðfestir undirskriftina út frá hráu meginmáli beiðninnar áður en hann merkir pöntunina greidda. Það er webhookið sem staðfestir pöntunina, ekki vafri viðskiptavinarins. Ef viðskiptavinurinn greiðir með kröfu getur greiðsluferlinu lokið um leið og krafan er send, áður en hún er greidd (payment_status er þá awaiting_claim), og þá er pöntunin fyrst greidd þegar atburðurinn payment_intent.captured berst.

Hvar leynilykillinn á heima

Skráðu þig á kling.is/signup og afritaðu prófunarlykilinn (sk_test_...) af síðunni API lyklar og skjölun. Bættu honum við umhverfisbreytur verkefnisins í v0, og í stillingum Vercel-verkefnisins þegar þú setur það í loftið. Ekki setja NEXT_PUBLIC_ fyrir framan nafnið: þá færi lykillinn í vafrann. Aðeins kóði á þjóninum, eins og route handlerarnir, á að lesa hann. Undirritunarlykill webhooksins, sem þú færð þegar þú bætir við webhook undir Forritarar → Webhooks í stjórnborðinu, er líka umhverfisbreyta.

Prófaðu

Með prófunarlykli fara engir raunverulegir peningar á milli. Greiddu með 4111 1111 1111 1111, hvaða gildistíma sem er fram í tímann og hvaða CVC sem er, og athugaðu hvort pöntunin merkist greidd. 4000 0000 0000 0002 er hafnað.

Í loftið

Sæktu um að taka við raunverulegum greiðslum í stjórnborðinu. Kling sækir um hjá færsluhirði fyrir þig, og þegar umsóknin hefur verið samþykkt býrðu til raunlykil og setur hann í Vercel í stað prófunarlykilsins. Raunumhverfið hefur sitt eigið webhook og sinn eigin undirritunarlykil. Sjá Úr prófunum í raunumhverfi.

Til að byrja afritar þú skipunina efst á síðunni og límir hana inn í v0.

Skoða sem markdown