# Taktu við greiðslum í v0

Hvernig þú tekur við kortagreiðslum í Next.js-forriti sem er smíðað í v0 á Íslandi með Kling. Bættu lyklinum við sem umhverfisbreytu, límdu inn eina skipun og prófaðu með prufukorti.

Stripe tekur ekki við íslenskum fyrirtækjum. Kling er greiðslulausn fyrir Ísland og hentar Next.js-forritunum sem v0 smíðar: route handler býr til greiðsluferli og viðskiptavinurinn greiðir í glugga á síðunni þinni.

## 1. Náðu í prófunarlykil

Skráðu þig á [kling.is/signup](https://kling.is/signup) og afritaðu prófunarlykilinn (`sk_test_...`) af síðunni **API lyklar og skjölun**.

## 2. Bættu honum við sem umhverfisbreytu

Bættu `KLING_SECRET_KEY` við umhverfisbreytur verkefnisins í v0, og í stillingum Vercel-verkefnisins þegar þú setur það í loftið. Ekki setja `NEXT_PUBLIC_` fyrir framan: þá færi lykillinn í vafrann.

## 3. Límdu þessa skipun inn í v0

```text
Bættu Kling greiðslum við þetta Next.js-forrit. Kling (kling.is) er greiðslulausn fyrir Ísland. Lestu https://kling.is/docs/v0.md og https://kling.is/docs/embedded-checkout.md áður en þú byrjar.

1. Búðu til route handler app/api/checkout/route.ts. Hann kallar á POST https://api.kling.is/v1/checkout/sessions með "Authorization: Bearer ${process.env.KLING_SECRET_KEY}" og JSON með upphæðinni og "currency": "ISK", og skilar { sessionId: session.id }. Upphæðir eru heilar krónur (5000 þýðir 5.000 kr.); aldrei margfalda með 100.
2. Í client component skaltu setja upp @klingis/embed. Þegar viðskiptavinurinn smellir á Greiða kallar þú á /api/checkout og opnar greiðslugluggann með Kling.init({ locale: "is" }) og kling.checkout({ sessionId }).
3. Búðu til app/api/webhooks/kling/route.ts sem les hrátt meginmál með request.text(), staðfestir X-Kling-Signature hausinn ("sha256=" og HMAC-SHA256 af hráu meginmáli í hex, með process.env.KLING_WEBHOOK_SECRET sem lykil) og merkir pöntunina greidda við checkout.session.completed.
4. Notaðu leynilykilinn aldrei í client components.
```

## 4. Prófaðu

Greiddu með `4111 1111 1111 1111`, hvaða gildistíma sem er fram í tímann og hvaða CVC sem er. `4000 0000 0000 0002` er hafnað.

## Webhooks og í loftið

Láttu webhook (**Tilkynningar** í stjórnborðinu) benda á `/api/webhooks/kling` á slóð forritsins og settu `KLING_WEBHOOK_SECRET`. Sjá [Webhooks](https://kling.is/docs/webhooks) og [Úr prófunum í raunumhverfi](https://kling.is/docs/going-live).
