# Greiðslur, heimildir og endurgreiðslur

Hvernig greiðsla fer í gegnum Kling, frá heimild til innheimtu og endurgreiðslu, og hvernig þú rukkar vistað kort á Íslandi með payment intents API.

Hver greiðsla í Kling er payment intent, hvort sem hún hófst í greiðsluferli, greiðsluhlekk, áskrift eða beinu API-kalli. Hér er farið yfir líftíma greiðslu og hvernig þú rukkar vistað kort, innheimtir seinna og endurgreiðir.

## Líftími greiðslu

| Staða | Merking |
|---|---|
| `requires_payment_method` | Stofnuð, bíður eftir korti. |
| `requires_action` | Viðskiptavinurinn þarf að ljúka skrefi, t.d. 3-D Secure í bankaappinu. |
| `authorized` | Upphæðin er frátekin á kortinu en ekki enn tekin. |
| `pending_settlement` | Samþykkt og í uppgjöri. Líttu á hana sem tókst. |
| `captured` | Greidd. |
| `awaiting_claim` | [Krafa í heimabanka](https://kling.is/docs/bank-claims) var send og bíður greiðslu. |
| `failed` | Hafnað eða mistókst. Villukóðinn (`code`) segir hvers vegna, t.d. `card_declined_insufficient_funds`. |
| `canceled` | Heimild var felld niður fyrir innheimtu. |
| `partially_refunded`, `refunded` | Hluti eða öll greiðslan var endurgreidd. |

## Innheimta strax eða seinna

Sjálfgefið er greiðsla heimiluð og innheimt í einu skrefi. Það hentar þjónustu, stafrænum vörum og áskriftum.

Til að taka upphæðina frá fyrst og innheimta seinna, til dæmis þegar pöntun er send, býrðu til greiðsluferlið eða payment intent með `"capture": false`. Síðan:

- `POST /v1/payment-intents/{id}/capture` innheimtir upphæðina. Sendu `amount` til að innheimta minna en var heimilað, til dæmis ef vara er uppseld.
- `POST /v1/payment-intents/{id}/cancel` fellir heimildina niður.

## Rukkaðu vistað kort

Þegar viðskiptavinur hefur vistað kort (greiðsluferli með `save_payment_method`, eða áskrift) geturðu rukkað það aftur án hans aðkomu:

```bash
curl -X POST https://api.kling.is/v1/payment-intents \
  -H "Authorization: Bearer $KLING_SECRET_KEY" \
  -H "Content-Type: application/json" \
  -H "Idempotency-Key: renewal-2026-10-cus_123" \
  -d '{
    "amount": 2990,
    "customer": "cus_...",
    "payment_method": "pm_...",
    "description": "Mánaðarkassi, október"
  }'
```

Nauðsynlegt: `amount`, `customer`, `payment_method`. Valkvætt: `currency`, `capture`, `description`, `statement_descriptor` (allt að 22 stafir, birtist á kortayfirliti) og `metadata`.

## Endurgreiðslur

`POST /v1/payment-intents/{id}/refund` endurgreiðir af innheimtri greiðslu. Slepptu `amount` fyrir fulla endurgreiðslu, eða sendu það fyrir hluta. Þú getur endurgreitt oftar en einu sinni, upp að því sem var greitt. Þú getur líka endurgreitt af síðu greiðslunnar í stjórnborðinu.

## Færsluhirðar

Kortagreiðslur í Kling fara í gegnum Straum, Verifone eða Rapyd, eftir aðganginum þínum. Kling sækir um hjá færsluhirði fyrir þig og API-ið er það sama hver sem hann er. Apple Pay er í boði hjá Straumi og hægt að virkja hjá Verifone; Google Pay er í boði hjá Straumi.
