SkjölunMeð gervigreind
MCP-þjónn
Tengdu gervigreindarfulltrúa eins og Claude, ChatGPT, Cursor og Claude Code við Kling aðganginn þinn með MCP-þjóni Kling, hýstum á api.kling.is/mcp eða keyrðum á þinni vél með npx @klingis/mcp.
MCP-þjónn Kling (Model Context Protocol) leyfir gervigreindarfulltrúum að búa til greiðsluferli, greiðsluhlekki, vörur og viðskiptavini, og lesa greiðslur, áskriftir og tekjur á Kling aðganginum þínum, í íslenskum krónum. Hann notar API-lykil frá Kling; byrjaðu með prófunarlykil, þá kemst fulltrúinn bara í prófunargögn.
Hýstur (engin uppsetning)
Kling keyrir þjóninn á https://api.kling.is/mcp (Streamable HTTP). Sendu API-lykilinn sem bearer-tóka.
Claude Code:
claude mcp add --transport http kling https://api.kling.is/mcp \
--header "Authorization: Bearer sk_test_..."Forrit sem taka aðeins við slóð, eins og sérsniðnir tenglar (custom connectors) í Claude eða ChatGPT: notaðu https://api.kling.is/mcp/<api-lykillinn-þinn>. Spjaldið AI connector á síðunni API lyklar og skjölun í stjórnborðinu gefur þér þessa slóð tilbúna til afritunar. Farðu með hana eins og lykilorð.
Á þinni vél (stdio)
Fyrir Claude Desktop, Cursor, Windsurf og önnur forrit sem keyra MCP-þjóna á vélinni þinni:
{
"mcpServers": {
"kling": {
"command": "npx",
"args": ["-y", "@klingis/mcp"],
"env": { "KLING_API_KEY": "sk_test_..." }
}
}
}Claude Code:
claude mcp add kling --env KLING_API_KEY=sk_test_... -- npx -y @klingis/mcpKLING_API_KEY er nauðsynlegt (KLING_SECRET_KEY virkar líka, svo .env.local sem kling init skrifar dugar). KLING_API_URL er sjálfgefið https://api.kling.is.
Tól
Stofna (ekki í boði með lykli sem má bara lesa):
create_checkout_session,create_payment_link,create_product,create_customer,create_webhook
Lesa:
get_checkout_session,get_payment_intent,list_payment_intentslist_products,list_customers,list_subscriptions,get_subscription,list_webhooksrevenue_report,mrr_report,subscription_breakdown,subscription_movement_report,cohort_retention_report,payment_outcomes_report,top_customers_reportget_api_docs: API-lýsing Kling, svo fulltrúinn geti skrifað kóða sem tengist henni
Ef fulltrúinn á bara að lesa skýrslur býrðu til lykil sem má bara lesa á API-lyklasíðunni; þá fær hann aðeins lestrartólin.
Prófaðu
Spurðu fulltrúann: „Búðu til Kling greiðsluhlekk upp á 4.990 kr." eða „Hverjar voru tekjurnar mínar í síðasta mánuði?"