# MCP-þjónn

Tengdu gervigreindarfulltrúa eins og Claude, ChatGPT, Cursor og Claude Code við Kling aðganginn þinn með MCP-þjóni Kling, hýstum á api.kling.is/mcp eða keyrðum á þinni vél með npx @klingis/mcp.

MCP-þjónn Kling ([Model Context Protocol](https://modelcontextprotocol.io)) leyfir gervigreindarfulltrúum að búa til greiðsluferli, greiðsluhlekki, vörur og viðskiptavini, og lesa greiðslur, áskriftir og tekjur á Kling aðganginum þínum, í íslenskum krónum. Hann notar API-lykil frá Kling; byrjaðu með prófunarlykil, þá kemst fulltrúinn bara í prófunargögn.

## Hýstur (engin uppsetning)

Kling keyrir þjóninn á `https://api.kling.is/mcp` (Streamable HTTP). Sendu API-lykilinn sem bearer-tóka.

Claude Code:

```bash
claude mcp add --transport http kling https://api.kling.is/mcp \
  --header "Authorization: Bearer sk_test_..."
```

Forrit sem taka aðeins við slóð, eins og sérsniðnir tenglar (custom connectors) í Claude eða ChatGPT: notaðu `https://api.kling.is/mcp/<api-lykillinn-þinn>`. Spjaldið **AI connector** á síðunni **API lyklar og skjölun** í stjórnborðinu gefur þér þessa slóð tilbúna til afritunar. Farðu með hana eins og lykilorð.

## Á þinni vél (stdio)

Fyrir Claude Desktop, Cursor, Windsurf og önnur forrit sem keyra MCP-þjóna á vélinni þinni:

```json
{
  "mcpServers": {
    "kling": {
      "command": "npx",
      "args": ["-y", "@klingis/mcp"],
      "env": { "KLING_API_KEY": "sk_test_..." }
    }
  }
}
```

Claude Code:

```bash
claude mcp add kling --env KLING_API_KEY=sk_test_... -- npx -y @klingis/mcp
```

`KLING_API_KEY` er nauðsynlegt (`KLING_SECRET_KEY` virkar líka, svo `.env.local` sem `kling init` skrifar dugar). `KLING_API_URL` er sjálfgefið `https://api.kling.is`.

## Tól

Stofna (ekki í boði með lykli sem má bara lesa):

- `create_checkout_session`, `create_payment_link`, `create_product`, `create_customer`, `create_webhook`

Lesa:

- `get_checkout_session`, `get_payment_intent`, `list_payment_intents`
- `list_products`, `list_customers`, `list_subscriptions`, `get_subscription`, `list_webhooks`
- `revenue_report`, `mrr_report`, `subscription_breakdown`, `subscription_movement_report`, `cohort_retention_report`, `payment_outcomes_report`, `top_customers_report`
- `get_api_docs`: API-lýsing Kling, svo fulltrúinn geti skrifað kóða sem tengist henni

Ef fulltrúinn á bara að lesa skýrslur býrðu til lykil sem má bara lesa á API-lyklasíðunni; þá fær hann aðeins lestrartólin.

## Prófaðu

Spurðu fulltrúann: „Búðu til Kling greiðsluhlekk upp á 4.990 kr." eða „Hverjar voru tekjurnar mínar í síðasta mánuði?"
