# Taktu við greiðslum í Lovable

Hvernig þú tekur við kortagreiðslum í Lovable-forriti á Íslandi með Kling. Geymdu lykilinn sem Supabase secret, límdu inn eina skipun og prófaðu með prufukorti.

Stripe tekur ekki við íslenskum fyrirtækjum, svo innbyggða Stripe-tenging Lovable gengur ekki hér. Kling er greiðslulausn fyrir Ísland sem virkar á sama hátt: bakendi forritsins býr til greiðsluferli og viðskiptavinurinn greiðir í glugga eða á greiðslusíðu Kling. Í Lovable keyrir bakendinn sem Supabase Edge Functions.

## 1. Náðu í prófunarlykil

Skráðu þig á [kling.is/signup](https://kling.is/signup) og afritaðu prófunarlykilinn (`sk_test_...`) af síðunni **API lyklar og skjölun**. Prófunarlyklar virka strax og engir raunverulegir peningar fara á milli.

## 2. Geymdu lykilinn sem secret

Leynilykillinn má aldrei vera í framendakóðanum. Tengdu Lovable-verkefnið við Supabase og bættu við secret sem heitir `KLING_SECRET_KEY` með prófunarlyklinum, í Supabase undir Edge Functions og secrets. Lovable getur líka beðið þig um hann þegar það smíðar fallið.

## 3. Límdu þessa skipun inn í Lovable

```text
Bættu Kling greiðslum við þetta forrit. Kling (kling.is) er greiðslulausn fyrir Ísland. Lestu https://kling.is/docs/lovable.md og https://kling.is/docs/embedded-checkout.md áður en þú byrjar.

1. Búðu til Supabase Edge Function "kling-checkout" sem kallar á POST https://api.kling.is/v1/checkout/sessions með hausnum "Authorization: Bearer <KLING_SECRET_KEY úr secrets fallsins>" og JSON með upphæðinni og "currency": "ISK". Skilaðu id greiðsluferlisins. Upphæðir eru heilar krónur (5000 þýðir 5.000 kr.); aldrei margfalda með 100.
2. Í framendanum skaltu setja upp @klingis/embed. Þegar viðskiptavinurinn smellir á Greiða kallar þú á fallið og opnar greiðslugluggann með Kling.init({ locale: "is" }) og kling.checkout({ sessionId }).
3. Búðu til annað Edge Function, "kling-webhook", sem tekur við webhooks frá Kling. Staðfestu X-Kling-Signature hausinn: hann er "sha256=" og á eftir HMAC-SHA256 af hráu meginmáli beiðninnar, í hex, með KLING_WEBHOOK_SECRET sem lykil. Við checkout.session.completed merkir þú pöntunina greidda.
4. Settu leynilykilinn aldrei í framendakóða.
```

## 4. Prófaðu

Greiddu með prufukortinu `4111 1111 1111 1111`, hvaða gildistíma sem er fram í tímann og hvaða CVC sem er. `4000 0000 0000 0002` sýnir greiðslu sem er hafnað.

## 5. Webhooks

Bættu við webhook í stjórnborðinu undir **Tilkynningar** sem bendir á slóð `kling-webhook` fallsins, með atburðinum `checkout.session.completed`. Afritaðu undirritunarlykilinn í Supabase secret sem heitir `KLING_WEBHOOK_SECRET`. Sjá [Webhooks](https://kling.is/docs/webhooks).

## Í loftið

Þegar aðgangurinn þinn hefur verið samþykktur fyrir raunverulegar greiðslur býrðu til raunlykil og setur hann í `KLING_SECRET_KEY`. Sjá [Úr prófunum í raunumhverfi](https://kling.is/docs/going-live).
