# Rukkun í heimabanka (kröfur)

Sendu kröfur í heimabanka með Kling. Krafan birtist í heimabanka viðskiptavinarins og hann greiðir hana eins og hvern annan reikning, ekkert kort þarf. Úr stjórnborðinu, í greiðsluferlinu eða í gegnum API.

Krafa í heimabanka er reikningur sem birtist í heimabanka viðskiptavinarins. Hann greiðir hana eins og hvern annan reikning, án korts. Kröfur henta vel fyrir reikninga milli fyrirtækja, félagsgjöld, námskeiðsgjöld og viðskiptavini sem vilja frekar greiða í gegnum bankann. Þær eru eingöngu í íslenskum krónum.

## Án forritunar

Opnaðu **Rukkun í heimabanka** í stjórnborðinu, sláðu inn kennitölu greiðanda, upphæð og gjalddaga og sendu. Krafan birtist í heimabanka viðskiptavinarins og undir **Kröfur** í stjórnborðinu sérðu þegar hún hefur verið greidd.

## Í greiðsluferlinu

Leyfðu viðskiptavininum að greiða með kröfu í [greiðsluferli](https://kling.is/docs/checkout) með því að setja `"payment_method_type": "bank_claim"`. Viðskiptavinurinn slær inn kennitölu í stað kortaupplýsinga og ferlinu lýkur með `payment_status: "awaiting_claim"`. Þegar hann greiðir í bankanum verður greiðslan `captured` og `payment_intent.captured` [webhook](https://kling.is/docs/webhooks) er sendur. Afhentu pöntunina þá, ekki fyrr.

Fyrir áskriftir sendir `"collection_method": "bank_claim"` kröfu á hverju tímabili í stað þess að rukka kort. Sjá [Áskriftir](https://kling.is/docs/subscriptions).

## Með API

`POST /v1/claims`:

```bash
curl -X POST https://api.kling.is/v1/claims \
  -H "Authorization: Bearer $KLING_SECRET_KEY" \
  -H "Content-Type: application/json" \
  -d '{
    "payor_kennitala": "0101302989",
    "amount": 15000,
    "due_date": 1767225600,
    "final_due_date": 1768435200
  }'
```

- `payor_kennitala`: 10 stafa kennitala greiðanda, án bandstriks.
- `amount`: heilar krónur.
- `due_date` (gjalddagi) og `final_due_date` (eindagi): Unix-tímastimplar.
- Valkvætt: `customer`, `items` (línur sem birtast á reikningnum; samtalan verður að vera jöfn `amount`) og `discount_amount`.

`status` kröfu er `pending`, `unpaid`, `paid`, `partially_paid`, `cancelled` eða `secondary_collection`. Listaðu kröfur með `GET /v1/claims` (síað eftir `status`, síðuskipting með `limit` og `offset`), sæktu eina með `GET /v1/claims/{id}` og felldu niður með `POST /v1/claims/{id}/cancel`. Webhooks `claim.created` og `claim.paid` láta þjóninn þinn vita hvað gerðist.

## Uppsetning

Kröfur fara ekki í gegnum færsluhirði. Þú undirritar samning um kröfur sem hluta af umsókninni um að fara í loftið, svo hægt er að virkja kröfur á undan kortagreiðslum. Þegar umsóknin hefur verið samþykkt leiðir stjórnborðið þig í gegnum tvö síðustu skrefin: að setja upp kröfurnar og skrá greiðslukort fyrir þjónustugjald Kling af hverri kröfu. Sjá [Úr prófunum í raunumhverfi](https://kling.is/docs/going-live).

## Verð

0,8% af hverri greiddri kröfu, minnst 25 kr. og mest 250 kr., auk kostnaðar bankans. Sjá [verðskrá](https://kling.is/pricing).
