Hvernig á að taka við greiðslum á Íslandi: leiðarvísir fyrir forritara
Til að taka við greiðslum á Íslandi skráir þú þig hjá greiðslulausn sem tekur við íslenskum fyrirtækjum, prófar greiðslur strax og ferð í loftið þegar aðgangurinn hefur verið staðfestur og færsluhirðir hefur samþykkt umsóknina. Hér sérðu hvernig það er gert með Kling, greiðslulausnum fyrir Ísland, án forritunar, með gervigreindartóli eða í gegnum API.
Birt
Það sem þú þarft
- Rekstur á Íslandi, sem fyrirtæki eða einstaklingur með kennitölu.
- Greiðslulausn sem þjónar Íslandi. Stripe gerir það ekki (sjá Stripe á Íslandi). Hér er notað Kling; í leiðarvísinum greiðslulausnir á Íslandi bornar saman er fjallað um aðra kosti.
- Fyrir kortagreiðslur, samning við færsluhirði, fyrirtækið sem afgreiðir kortafærsluna. Kling sækir um hjá færsluhirði fyrir þína hönd.
- Bankareikning fyrir uppgjör. Þú heldur þínum banka.
- Ef þú selur á netinu, nokkur atriði á vefsíðunni sem færsluhirðir skoðar áður en hann samþykkir, til dæmis skilmála og upplýsingar um fyrirtækið. Sjá hvað þarf að koma fram á vefsíðunni.
Ekkert af þessu þarf til að byrja að smíða. Prófunarlyklar virka um leið og þú skráir þig.
Ákveddu hvernig viðskiptavinir borga
| Greiðsluleið | Hentar fyrir | Hvernig |
|---|---|---|
| Kort, Apple Pay og Google Pay | Vefverslanir, stakar sölur, bókanir | Greiðsluferli, greiðslugluggi, greiðsluhlekkir |
| Kröfur í heimabanka | Reikninga, félagsgjöld, námskeiðsgjöld, viðskiptavini sem vilja borga í gegnum bankann | Rukkun í heimabanka |
| Áskriftir, með korti eða kröfu | Félagsaðild, mánaðaráskriftir, styrki | Áskriftir |
| Kortagreiðslur á staðnum | Verslanir, viðburði, markaði | Kling posi, settur upp í stjórnborðinu |
Krafa birtist í heimabanka viðskiptavinarins og hann greiðir hana eins og hvern annan reikning, án korts. Þetta er algeng greiðsluleið á Íslandi og fer ekki í gegnum færsluhirði, svo oft er hægt að samþykkja kröfur á undan kortagreiðslum.
Leið 1: án forritunar
Ef þú ert ekki með vefsíðu, eða vilt ekki breyta henni:
- Skráðu þig og opnaðu stjórnborðið.
- Búðu til greiðsluhlekk fyrir vöru eða upphæð, eða áskriftarhlekk fyrir mánaðaráskrift.
- Sendu hlekkinn í tölvupósti eða SMS, settu hann á samfélagsmiðla eða bættu honum við vefsíðuna sem hnappi.
Til að rukka í gegnum heimabanka opnar þú Rukkun í heimabanka í stjórnborðinu, slærð inn kennitölu viðskiptavinarins, upphæð og gjalddaga og sendir.
Leið 2: með gervigreindartóli
Ef þú smíðar með Lovable, Bolt, Replit, v0, Cursor eða Claude Code skaltu segja tólinu að þú sért á Íslandi og notir Kling. Fyrir hvert tól eru leiðbeiningar með skipun sem þú getur límt inn: Lovable, Bolt, Replit, v0, Cursor, Claude Code.
Fyrir gervigreind sem vinnur beint í Kling-aðganginum þínum tengir þú MCP-þjóninn. Byrjaðu með prófunarlykil svo hún komist bara í prófunargögn.
Leið 3: í gegnum API
API-ið er á https://api.kling.is og leynilykillinn þinn er sendur sem bearer-tóki. Fljótlegast er að byrja með CLI, keyrt í rót verkefnisins:
npx @klingis/cli initÞað skráir þig inn, skrifar prófunarlykilinn í .env.local, getur sett upp webhook og skrifar skipanaskrá fyrir gervigreindartólið þitt.
1. Búðu til greiðsluferli á þjóninum
curl -X POST https://api.kling.is/v1/checkout/sessions \
-H "Authorization: Bearer sk_test_your_key_here" \
-H "Content-Type: application/json" \
-H "Idempotency-Key: $(uuidgen)" \
-d '{
"amount": 1000,
"currency": "ISK",
"success_url": "https://example.is/takk"
}'Í svarinu er url. Sendu viðskiptavininn þangað, eða opnaðu greiðsluferlið ofan á þinni eigin síðu með greiðsluglugganum (@klingis/embed).
2. Borgaðu með prufukorti
Notaðu 4111 1111 1111 1111 með hvaða gildistíma sem er fram í tímann og hvaða CVC sem er. 4000 0000 0000 0002 gefur greiðslu sem er hafnað.
3. Afgreiddu pantanir út frá webhooks
Treystu ekki á að vafri viðskiptavinarins komi aftur á síðuna þína. Skráðu webhook og afgreiddu pöntunina þegar payment_intent.captured berst. Sá atburður nær líka yfir kröfu sem hefur verið greidd, sem getur verið dögum eftir að greiðsluferlinu lauk.
Gott að gera rétt frá fyrsta degi
- Upphæðir eru heilar krónur. Krónan hefur enga aukastafi, svo
1000er 1.000 kr. Aldrei margfalda með 100. - Leynilykillinn á heima á þjóninum. Hann má aldrei vera í kóða sem keyrir í vafra.
- Sendu
Idempotency-Keymeð beiðnum sem breyta gögnum, svo endurtekin beiðni rukki aldrei tvisvar. - Staðfestu undirskrift webhooks (
X-Kling-Signature) áður en þú treystir þeim. - Prófun og raunumhverfi eru aðskilin, með sína lykla og sín webhook-leyndarmál.
Allt um þetta er í skjöluninni, API-tilvísuninni og pökkunum.
Í loftið
Þegar þú ert tilbúin(n) fyrir raunverulegar greiðslur velur þú Fara í loftið í stjórnborðinu. Þú gefur upp upplýsingar um fyrirtækið, bankareikninginn fyrir uppgjör og hvað þú selur. Kling sækir um hjá færsluhirði fyrir þig; þú lýkur áreiðanleikakönnun og undirritar samninginn. Þegar greiðsluleið hefur verið samþykkt býrð þú til raunlykil (sk_live_...) og setur hann í staðinn fyrir prófunarlykilinn. Ekkert annað í kóðanum breytist.
Hversu langan tíma það tekur ræðst mest af því hve hratt pappírarnir skila sér. Á síðunni úr prófunum í raunumhverfi er farið yfir hvert skref og hvernig má flýta fyrir.
Hvað það kostar
Ekkert stofngjald og engin mánaðargjöld; þú greiðir fyrir hverja greiðslu. Gjöld færsluhirðis og kostnaður bankans af kröfum bætast við. Sjá verðskrá.
Spurningar? Skrifaðu á hallo@kling.is.
Fleiri leiðarvísar
- Stripe á Íslandi: af hverju það virkar ekki og hvað kemur í staðinnStripe virkar ekki fyrir fyrirtæki á Íslandi því Ísland er ekki á lista Stripe yfir lönd sem þjónustan nær til, svo fyrirtæki sem er skráð á Íslandi getur ekki stofnað aðgang hjá Stripe. Notaðu frekar greiðslulausn sem þjónar íslenskum fyrirtækjum, eins og Kling, sem tekur við kortum, Apple Pay, Google Pay og kröfum í heimabanka, í íslenskum krónum.
- Greiðslulausnir á Íslandi bornar saman: Straumur, Teya, Rapyd, Adyen og KlingFyrirtæki á Íslandi taka við kortagreiðslum annaðhvort í gegnum færsluhirði eins og Straum, Teya eða Rapyd, eða í gegnum greiðslulausn eins og Kling, sem keyrir á þessum greiðslumiðlunum og bætir við greiðsluferli, áskriftum, kröfum í heimabanka og API fyrir forritara. Stripe þjónar ekki Íslandi og Ísland er ekki á landalista Adyen fyrir verkvanga.