Efni

SkjölunMeð gervigreind

Taktu við greiðslum í Replit

Hvernig þú tekur við kortagreiðslum í Replit-forriti á Íslandi með Kling. Geymdu lykilinn í Replit Secrets, biddu Replit Agent um þetta með einni skipun og prófaðu með prufukorti.

Stripe tekur ekki við íslenskum fyrirtækjum. Kling er greiðslulausn fyrir Ísland og Replit-forrit getur notað hana með litlum endapunkti á þjóninum og greiðsluglugga Kling.

1. Náðu í prófunarlykil

Skráðu þig á kling.is/signup og afritaðu prófunarlykilinn (sk_test_...) af síðunni API lyklar og skjölun.

2. Settu hann í Replit Secrets

Opnaðu Secrets í verkefninu og bættu við KLING_SECRET_KEY með prófunarlyklinum. Secrets berast kóðanum á þjóninum sem umhverfisbreytur og eru ekki hluti af kóðanum sem þú deilir.

3. Límdu þessa skipun inn í Replit Agent

text
Bættu Kling greiðslum við þetta forrit. Kling (kling.is) er greiðslulausn fyrir Ísland. Lestu https://kling.is/docs/replit.md og https://kling.is/docs/embedded-checkout.md áður en þú byrjar.

1. Bættu við endapunkti POST /api/checkout á þjóninum sem kallar á POST https://api.kling.is/v1/checkout/sessions með "Authorization: Bearer" og umhverfisbreytunni KLING_SECRET_KEY, og JSON með upphæðinni og "currency": "ISK". Skilaðu id greiðsluferlisins. Upphæðir eru heilar krónur (5000 þýðir 5.000 kr.); aldrei margfalda með 100.
2. Í framendanum skaltu hlaða https://api.kling.is/v1/kling.js (eða setja upp @klingis/embed). Þegar viðskiptavinurinn smellir á Greiða kallar þú á /api/checkout og opnar greiðslugluggann með Kling.init({ locale: "is" }) og kling.checkout({ sessionId }).
3. Bættu við POST /api/webhooks/kling sem staðfestir X-Kling-Signature hausinn ("sha256=" og HMAC-SHA256 af hráu meginmáli í hex, með KLING_WEBHOOK_SECRET sem lykil) og merkir pöntunina greidda við checkout.session.completed.
4. Lestu lykla eingöngu úr umhverfisbreytum. Sendu leynilykilinn aldrei í vafrann.

4. Prófaðu

Greiddu með 4111 1111 1111 1111, hvaða gildistíma sem er fram í tímann og hvaða CVC sem er. 4000 0000 0000 0002 er hafnað.

Webhooks og í loftið

Notaðu slóð forritsins eftir að það er komið í loftið fyrir webhook (Tilkynningar í stjórnborðinu) og bættu undirritunarlyklinum í Secrets sem KLING_WEBHOOK_SECRET. Sjá Webhooks og Úr prófunum í raunumhverfi.

Skoða sem markdown