Skráning og greiðsla í einu ferli
Taktu við skráningum og námskeiðsgjöldum á einum stað. Með Kling hefurðu yfirsýn yfir þátttakendur og greiðslur og verð minni tíma í að yfirfara millifærslur og senda kvittanir.
Algengar áskoranir í dag
Þetta eru dæmi um það sem margir glíma við áður en þeir taka Kling í notkun.
Skráningin sýnir ekki hvort greitt hefur verið
Skráningar berast í gegnum eyðublað en greiðslur sjást í bankanum. Þú þarft að bera upplýsingarnar saman til að sjá hverjir hafa greitt.
Ógreiddar skráningar torvelda skipulagið
Pláss eru tekin frá áður en greiðslur berast og óljóst er hversu margir ætla að mæta. Því getur verið erfitt að vita hvort hægt sé að bjóða fleirum að taka þátt.
Þátttakendur þurfa að biðja um kvittanir
Þú þarft að finna greiðsluna og senda kvittun þegar þátttakandi óskar eftir henni eða finnur ekki kvittun sem hefur þegar verið send.
Svona nýtist Kling við námskeið og fræðslu
Haltu utan um skráningar, laus pláss og greiðslur
Með Viðburðum tekurðu við skráningum og greiðslum fyrir námskeið í einu ferli. Þátttakandinn skráir sig, greiðir og fær kvittun sjálfkrafa. Þú hefur yfirlit yfir þátttakendur og greiðslustöðu þeirra.
Í Viðburðum heldurðu líka utan um fjölda plássa á námskeiðinu. Ef þú þarft að innheimta námskeiðsgjald sérstaklega geturðu sent þátttakanda greiðsluhlekk.
Fyrir lengri námskeið eða námsleiðir geturðu notað Áskriftir til að innheimta gjöldin með reglulegum greiðslum yfir námstímann. Þú getur sent þátttakanda hlekk í innheimtugáttina ef hann þarf að uppfæra kortið sitt eða stöðva greiðslurnar.
Mælt með fyrir þig
Lausnir fyrir námskeiðshaldara og fræðsluaðila
- GreiðsluhlekkirInnheimtu námskeiðsgjöld með greiðsluhlekk sem þú getur sent eða deilt.
- ViðburðirHaltu utan um fjölda plássa, skráningar og greiðslur fyrir námskeið.
- ÁskriftirInnheimtu námskeiðs- og námsgjöld með reglulegum greiðslum yfir námstímann.
- InnheimtugáttHlekkur sem þú sendir þátttakanda svo hann geti uppfært kortið sitt eða stöðvað greiðslurnar.
- Kling posiTaktu við greiðslum á staðnum með því að senda greiðslubeiðni með SMS eða sýna QR-kóða.
Þau nota Kling
Reynsla viðskiptavina

Kristín Hildur Ragnarsdóttir
Framkvæmdastjóri, Frami
Kling hefur gert okkur kleift að einfalda greiðsluferlið fyrir nemendur okkar. Uppsetningin var fljótleg, viðmótið er einfalt og þjónustan frábær. Við mælum eindregið með Kling fyrir öll fyrirtæki sem þurfa að taka við greiðslum á netinu.
Menntun
Ingólfur Sigurðsson
Tækniþjálfun
Við fengum lausn sem gerir nákvæmlega það sem okkur vantaði. Foreldrar skrá krakkana, velja kort eða kröfu og borga með greiðsludreifingu yfir tímabilið, og allar greiðslur koma fram á einum stað. Hundruð skráninga rúlluðu í gegn án þess að við þyrftum að elta neitt uppi.
Íþróttir og þjálfunAðstoð við að velja lausn
Spurðu Kling ræsi
Kling ræsir er spjallaðstoð á forsíðu Kling. Lýstu því hvernig þú tekur við skráningum og greiðslum í dag og hvað þú vilt bæta. Ræsirinn hjálpar þér að finna lausnir sem henta starfseminni. Þú getur prófað hann án þess að stofna aðgang.
Opna Kling ræsi →Ég held námskeið fyrir 16 manns í senn og rukka með millifærslu.
Þá gætu Viðburðir hentað þér til að halda utan um fjölda plássa og taka við skráningum og greiðslum í einu ferli. Greiða þátttakendur allt námskeiðsgjaldið í einu eða viltu bjóða þeim að greiða það í hlutum?
Taktu við skráningum og greiðslum fyrir næsta námskeið
Settu upp námskeiðið og deildu skráningarhlekknum. Í Kling hefurðu yfirlit yfir skráningar og greiðslur. Engin forritun er nauðsynleg.