Fyrir félög og klúbba

Félagatal og félagsgjöld á einum stað

Haltu utan um félagsmenn, sendu kröfur vegna félagsgjalda í heimabanka eða innheimtu gjöldin með reglulegum kortagreiðslum. Með Kling hefur stjórnin yfirsýn yfir hverjir hafa greitt og ver minni tíma í að yfirfara og skrá greiðslur.

Félagsgjöld 2026Klúbbar og félög
Anna Björnsdóttir8.900 kr.Greitt
Jón Ólafsson8.900 kr.Greitt
Sara Marinósdóttir8.900 kr.Í heimabanka
142 af 168 hafa greittuppfært sjálfkrafa

Algengar áskoranir í dag

Þetta eru dæmi um það sem margir glíma við áður en þeir taka Kling í notkun.

Félagatal og greiðslur eru aðskilin

Félagatalið er í Excel og greiðslurnar í bankanum. Til að sjá hverjir hafa greitt þarf að bera upplýsingarnar saman og uppfæra félagatalið.

Hver greiðsla kallar á handavinnu

Félagsmenn millifæra og senda kvittanir. Gjaldkerinn skráir greiðslurnar og minnir á ógreidd félagsgjöld.

Ný stjórn þarf að kynna sér stöðuna

Ný stjórn þarf að taka við skrám, finna eldri upplýsingar og kynna sér stöðu innheimtunnar.

Svona nýtist Kling félaginu

Haltu utan um félagsmenn og innheimtu á einum stað

Í Klúbbum og félögum heldurðu utan um félagatalið og félagsgjöldin. Þú stofnar félagsgjald og sendir kröfur í heimabanka félagsmanna. Greiðslustaðan uppfærist sjálfkrafa og því er minni þörf á að bera saman bankayfirlit og félagatal.

Með Viðburðum geturðu tekið við skráningum og greiðslum fyrir árshátíðir, fræðslukvöld og aðra viðburði í einu ferli. Þannig hefurðu yfirlit yfir þátttakendur og greiðslur.

Ef félagið selur til dæmis boli eða annan varning geturðu sent kaupendum greiðsluhlekk án þess að setja upp vefverslun.

Notar félagið annað félagakerfi? Hægt er að tengja önnur kerfi við Kling með forritaskilum (API). Hafðu samband við okkur til að kanna hvað þarf til að tengja kerfið ykkar.

Mælt með fyrir þig

Lausnir fyrir félög og klúbba

Þau nota Kling

Reynsla viðskiptavina

Ásgerður Björnsdóttir

Ásgerður Björnsdóttir

Framkvæmdastjóri, SÁÁ

Með Kling getum við tekið á móti framlögum og félagsgjöldum á netinu á einfaldan hátt. Það var mikilvægt fyrir okkur að hafa lausn sem bara virkar — og Kling skilaði einmitt því. Félagsmenn okkar geta nú greitt og endurnýjað félagsaðild sína án vandræða.
SÁÁGóðgerðarstarfsemi

Aðstoð við að velja lausn

Spurðu Kling ræsi

Kling ræsir er spjallaðstoð á forsíðu Kling. Lýstu því hvernig félagið innheimtir gjöld í dag og hvað þið viljið bæta. Ræsirinn hjálpar þér að finna lausnir sem henta félaginu og nálgast upplýsingar um uppsetningu og verð.

Þú getur prófað Kling ræsi án þess að stofna aðgang. Ef þú vilt frekar tala við okkur geturðu óskað eftir því í spjallinu.

Opna Kling ræsi →
Kling ræsirHvernig fer innheimtan fram hjá ykkur?

Við erum fagfélag með 700 félagsmenn og innheimtum árgjald.

Þá gætu Klúbbar og félög hentað ykkur. Þar getið þið sent kröfur vegna árgjaldsins í heimabanka félagsmanna. Hvernig haldið þið utan um félagatalið í dag?

Komdu innheimtu félagsins í Kling

Stofnaðu aðgang eða hafðu samband við okkur. Við förum með þér yfir félagatalið og félagsgjöldin og hjálpum þér að taka fyrstu skrefin.