Félagatal, félagsflokkar og félagsgjöld á einum stað
Þú kveikir á lausninni Klúbbar og félög í mælaborðinu. Þú heldur utan um félagatalið, skilgreinir félagsflokka með endurteknum greiðslum og innheimtir félagsgjöld án þess að bera saman lista og bankayfirlit.
Algengar áskoranir í dag
Þetta eru dæmi um það sem margir glíma við áður en þeir kveikja á lausninni.
Félagatalið er í töflureikni
Listinn er uppfærður handvirkt og fleiri en ein útgáfa getur verið í umferð. Þegar félagsmaður bætist við eða hættir þarf að muna eftir að uppfæra réttu skrána.
Ólíkir félagsflokkar flækja innheimtuna
Fullgildir félagsmenn, öldungar og nemar greiða ekki sömu upphæð og því þarf að halda utan um hvern flokk fyrir sig.
Greiðslustaðan sést ekki við hliðina á nafninu
Til að sjá hverjir hafa greitt þarf að bera bankayfirlitið saman við félagatalið og uppfæra listann eftir á.
Svona virkar lausnin
Félagsmenn, félagsflokkar og innheimta innan sama aðgangs
Félagatalið er í Kling og greiðslustaða hvers félagsmanns sést við hliðina á nafninu. Þannig er minni þörf á að bera saman lista og bankayfirlit.
Þú skilgreinir félagsflokka, ákveður gjald fyrir hvern flokk og setur upp endurteknar greiðslur. Innheimtan fer af stað á réttum tíma fyrir hvern flokk.
Ertu þegar með félagatal? Þú getur flutt það inn með CSV-skrá og notað núverandi upplýsingar áfram.
Félagsmenn geta greitt með korti eða fengið kröfu í heimabanka. Lausnin vinnur líka með Viðburðum, svo miðasala á árshátíð og skráning á fræðslukvöld haldast innan sama aðgangs.
Í lausninni
Það sem fylgir lausninni
- Innheimta félagsgjaldaStofnaðu gjald og innheimtu það hjá félagsmönnum.
- FélagatalFélagatalið og greiðslustaða hvers félagsmanns á einum stað.
- Félagsflokkar með endurteknum greiðslumGjöld og innheimtutíðni geta verið mismunandi eftir félagsflokkum.
- Innflutningur félagatals úr CSV-skráFluttu inn núverandi félagatal og notaðu upplýsingarnar áfram.
- Vinnur með ViðburðumMiðasala og skráningar á viðburði félagsins innan sama aðgangs.
Þau nota Kling
Reynsla viðskiptavina

Ásgerður Björnsdóttir
Framkvæmdastjóri, SÁÁ
Með Kling getum við tekið á móti framlögum og félagsgjöldum á netinu á einfaldan hátt. Það var mikilvægt fyrir okkur að hafa lausn sem bara virkar — og Kling skilaði einmitt því. Félagsmenn okkar geta nú greitt og endurnýjað félagsaðild sína án vandræða.
Aðstoð við að velja lausn
Spurðu Kling ræsi
Kling ræsir er spjallaðstoðin á forsíðu Kling. Lýstu því hvernig félagið heldur utan um félagsmenn og gjöld í dag og hvað þið viljið bæta. Ræsirinn hjálpar þér að meta hvort lausnin henti félaginu og hvað þarf til að taka hana í notkun.
Þú getur prófað Kling ræsi án þess að stofna aðgang. Ef þú vilt frekar tala við okkur geturðu óskað eftir því í spjallinu.
Opna Kling ræsi →Við erum með 400 félagsmenn í þremur flokkum og innheimtum árgjald.
Þá gætu Klúbbar og félög hentað ykkur. Þið skilgreinið flokk fyrir hvern hóp, ákveðið gjaldið og flytjið núverandi félagatal inn úr CSV-skrá. Innheimtið þið árgjaldið í einu lagi eða viljið þið dreifa því yfir árið?
Kveiktu á Klúbbum og félögum
Lausnin er í mælaborði Kling undir „Lausnir“. Þú kveikir á henni og byrjar á að flytja inn félagatalið eða skilgreina fyrsta félagsflokkinn.