Fyrir íþróttafélög, deildir og mótshaldara

Skráningar og greiðslur á einum stað

Taktu við skráningum og þátttökugjöldum fyrir mót og innheimtu æfingagjöld með kortagreiðslum eða kröfum í heimabanka. Með Kling hefurðu yfirsýn yfir þátttakendur og greiðslur og verð minni tíma í að bera saman skráningar og bankayfirlit.

Vormót 2026: skráningViðburðir
U12 drengir · Hlynur R.12.500 kr.Greitt
U14 stúlkur · Emilía Þ.12.500 kr.Greitt
U16 blandað · Kári G.12.500 kr.Bíður
214 þátttakendur skráðir · 208 hafa greittSkráningar og greiðslustaða á einum stað

Algengar áskoranir í dag

Þetta eru dæmi um það sem margir glíma við áður en þeir taka Kling í notkun.

Ekki sést alltaf fyrir hvern er greitt

Þegar skýringu vantar með millifærslu getur verið erfitt að sjá fyrir hvaða þátttakanda er greitt eða í hvaða flokki hann er skráður.

Skráningar og greiðslur eru aðskildar

Þú þarft að bera skráningarlistann saman við bankayfirlitið til að sjá hverjir hafa greitt þátttökugjaldið.

Greiðsludreifing kallar á aukna umsýslu

Foreldrar vilja dreifa greiðslu æfingagjaldsins yfir önnina en það getur kallað á aukna umsýslu og eftirfylgni.

Svona nýtist Kling við æfingar og mót

Taktu við skráningum og haltu utan um greiðslurnar

Með Viðburðum fara skráning og greiðsla fram í einu ferli. Þú hefur yfirlit yfir þátttakendur og greiðslustöðu þeirra og því er minni þörf á að tengja millifærslur við skráningar handvirkt.

Foreldrar geta valið að greiða með korti eða fá kröfu í heimabanka. Með Áskriftum getur félagið innheimt æfingagjaldið sem reglulega greiðslu í stað einnar upphæðar. Áskrift hefur engan endadag, svo hún rennur þangað til félagið segir henni upp í lok annar.

Á mótsstað geturðu notað Kling posann í símanum til að senda greiðslubeiðni með SMS eða sýna QR-kóða þegar þú selur varning og veitingar.

Þú getur innheimt liðagjöld og staðfestingargjöld með greiðsluhlekk sem þú sendir til dæmis í tölvupósti eða hópspjalli.

Mælt með fyrir þig

Lausnir fyrir íþróttafélög og mótshaldara

Þau nota Kling

Reynsla viðskiptavina

Ingólfur Sigurðsson

Ingólfur Sigurðsson

Tækniþjálfun

Við fengum lausn sem gerir nákvæmlega það sem okkur vantaði. Foreldrar skrá krakkana, velja kort eða kröfu og borga með greiðsludreifingu yfir tímabilið, og allar greiðslur koma fram á einum stað. Hundruð skráninga rúlluðu í gegn án þess að við þyrftum að elta neitt uppi.
TækniþjálfunÍþróttir og þjálfun
Lesa söguna

Aðstoð við að velja lausn

Spurðu Kling ræsi

Kling ræsir er spjallaðstoð á forsíðu Kling. Lýstu því hvernig þið takið við skráningum og greiðslum í dag og hvað þið viljið bæta. Ræsirinn hjálpar þér að finna lausnir sem henta starfseminni og nálgast upplýsingar um uppsetningu og verð.

Þú getur prófað Kling ræsi án þess að stofna aðgang. Ef þú vilt frekar tala við okkur geturðu óskað eftir því í spjallinu.

Opna Kling ræsi →
Kling ræsirHvernig haldið þið utan um skráningar og greiðslur í dag?

Við höldum mót með um 1.000 skráningum og tökum við millifærslum.

Þá gætu Viðburðir hentað ykkur til að sameina skráningu og greiðslu. Skráir hver þátttakandi sig sjálfur eða sér einn aðili um að skrá heilt lið?

Taktu við skráningum og greiðslum fyrir næsta mót

Stofnaðu aðgang eða hafðu samband við okkur til að fara yfir skráningar og þátttökugjöld og kanna hvernig Kling getur nýst með þeim kerfum sem félagið notar í dag.