Fyrir vefverslanir og fyrirtæki sem selja vörur í áskrift

Taktu við greiðslum fyrir vörur og áskriftir

Taktu við greiðslum með greiðsluhlekk, tengdu Kling við vefverslunina þína eða innheimtu gjöld fyrir vöruáskriftir með reglulegum greiðslum. Þú hefur yfirsýn yfir greiðslur og áskriftir á einum stað.

Kaffiáskrift · 500 gÁskriftir
Mánaðarleg áskrift4.990 kr.Virkt
Afhending · DroppHöfðabakkiValið
Næsta rukkun1. okt. 2026Áætlað
312 virkar áskriftirÁskriftargjöld innheimt sjálfkrafa

Algengar áskoranir í dag

Þetta eru dæmi um það sem margir glíma við áður en þeir taka Kling í notkun.

Pantanir í skilaboðum, greiðslur í bankanum

Pantanir berast í skilaboðum á Instagram og viðskiptavinir millifæra. Þú þarft að bera greiðslurnar saman við pantanirnar til að sjá hvaða pantanir hafa verið greiddar.

Þú vilt byrja að selja áður en vefverslunin er tilbúin

Þú ert með vörur til sölu en þarft einfalda leið til að taka við greiðslum á meðan þú undirbýrð vefverslunina.

Áskriftir kalla á endurtekna handavinnu

Þú innheimtir sömu upphæðir reglulega og þarft að muna eftir hverri innheimtu og fylgjast með því hvort greiðslur berast.

Svona nýtist Kling við vörusölu og áskriftir

Greiðsluhlekkir, vefgreiðslur og regluleg innheimta

Búðu til greiðsluhlekk með vöruheiti, verði og mynd. Þú getur sent hann til kaupanda eða deilt honum á samfélagsmiðlum, í tölvupósti eða á vefnum þínum. Engin forritun er nauðsynleg.

Ef þú selur kaffi, blóm eða matarboxa í áskrift geturðu notað Áskriftir til að innheimta áskriftargjöldin reglulega. Þú getur sent áskrifandanum hlekk í innheimtugáttina, þar sem hann getur uppfært kortið sitt eða sagt upp.

Viltu setja upp vefverslun? Með lausninni Vefsíða færðu hýsta vefverslun sem er tengd vörunum þínum og greiðsluferlinu. Lausnin er í beta-prófun. Undir Tengingum finnurðu WooCommerce-viðbót og SDK fyrir önnur kerfi. Með Greiðsluglugganum tekurðu við greiðslum á eigin vef. Með lausninni Afhending velur viðskiptavinurinn afhendingarstað hjá Dropp á Mínum síðum.

Mælt með fyrir þig

Lausnir fyrir vörusölu og áskriftir

Þau nota Kling

Reynsla viðskiptavina

David Esguerra

David Esguerra

Framleiðslu- og afhendingarstjóri, Sódavatn

Við notum Kling með Journey fyrir áskriftir, tínslu og sendingar með Dropp og í okkar eigin akstri. Tengingin gekk vel og við vorum fljótt komin af stað. Kerfið sér um allt áskriftarflæðið frá greiðslu til endurtekinnar rukkunar og einfaldar lífið gríðarlega..
SódavatnÁskriftir og sendingar
Erla Sævarsdóttir

Erla Sævarsdóttir

Blómstra

Við notum Kling posann fyrir þá viðskiptavini sem koma til okkar í eigin persónu og síðan notum við áskriftarkerfið fyrir blómaáskriftirnar okkar. Uppsetningin var einföld og teymið var ótrúlega hjálplegt.
BlómstraÁskriftir og sendingar

Aðstoð við að velja lausn

Spurðu Kling ræsi

Kling ræsir er spjallaðstoð á forsíðu Kling. Lýstu því hvað þú selur, hvernig þú tekur við greiðslum í dag og hvað þú vilt bæta. Ræsirinn hjálpar þér að finna lausnir sem henta starfseminni. Þú getur prófað hann án þess að stofna aðgang.

Opna Kling ræsi →
Kling ræsirHvað selurðu og hvernig tekurðu við greiðslum í dag?

Ég sel handgerða vöru á Instagram og vil hætta að taka við millifærslum.

Þá gætu greiðsluhlekkir hentað þér. Þú getur sent kaupanda hlekk til að greiða fyrir vöruna. Eru vörurnar á föstu verði eða verðleggurðu hverja pöntun sérstaklega?

Taktu við greiðslum með Kling

Stofnaðu aðgang eða hafðu samband við okkur til að finna greiðslulausnir sem henta vörusölunni, vefversluninni eða áskriftunum þínum.