Fyrir vefstofur og þróunaraðila

Tengdu greiðslur við vefi og kerfi viðskiptavina

Notaðu forritaskil (API) og greiðsluglugga Kling til að tengja greiðslur við verkefnið þitt. Prófunarumhverfi og skjölun hjálpa þér að prófa greiðsluferlið og meta umfang innleiðingarinnar áður en lausnin fer í notkun hjá viðskiptavini.

Fyrsta tengingAPI · Prófunarumhverfi
POST /payment-links201 CreatedÍ lagi
PrófunarlyklarstraxVirkt
Prófun á greiðsluferliLokið
Prófunarumhverfi aðgengilegt eftir skráningu

Algengar áskoranir í dag

Þetta eru dæmi um það sem margir glíma við áður en þeir taka Kling í notkun.

Innleiðing greiðslulausnarinnar reynist umfangsmeiri en áætlað var

Óljós skjölun og óvæntar kröfur geta lengt innleiðingartímann og gert erfitt að áætla tíma og kostnað fyrir viðskiptavininn.

Þú þarft að prófa lausnina áður en þú velur hana

Án aðgangs að prófunarumhverfi er erfitt að meta hvort greiðslulausnin henti verkefninu og hvað þarf til að tengja hana við vefinn eða kerfið.

Þú þarft tæknilega aðstoð þegar vandi kemur upp

Þegar villa kemur upp í greiðsluferlinu þarftu að geta leitað til fólks sem þekkir lausnina og getur aðstoðað við að greina vandann.

Svona nýtist Kling í þróunarverkefnum

Prófaðu greiðsluferlið og tengdu greiðslur við verkefnið þitt

Eftir skráningu færðu aðgang að prófunarlyklum og getur prófað greiðsluferlið í prófunarumhverfi Kling. Þannig geturðu metið hvort lausnin henti verkefninu áður en þú tekur við raunverulegum greiðslum.

Skjölun fyrir API og greiðsluglugga er á ensku. Þú getur notað hana við innleiðinguna, hvort sem þú skrifar kóðann sjálfur eða notar forritunartól þér til aðstoðar.

Ef viðskiptavinurinn þarf að taka við greiðslum án kerfistengingar geturðu notað greiðsluhlekki. Hægt er að senda þá eða birta á vef án þess að forrita.

Ef verkefnið krefst sérsniðinnar útfærslu geturðu haft samband við okkur. Við förum yfir þarfir verkefnisins með þér, skoðum mögulegar útfærslur og metum umfang og innleiðingartíma.

Mælt með fyrir þig

Lausnir fyrir vefstofur og þróunaraðila

Þau nota Kling

Reynsla viðskiptavina

Jökull Sólberg

Jökull Sólberg

Forritari hjá Trip to Japan

Það var virkilega einfalt að setja þetta upp. Ég las skjölin, tengdi API-ið við bókunarferlið okkar og við byrjuðum að taka við greiðslum á nokkrum dögum. Þetta er greiðslulausnin sem hefur vantað á Íslandi, hönnuð nákvæmlega eins og forritarar vilja vinna.
Trip to JapanFerðaþjónusta
David Esguerra

David Esguerra

Framleiðslu- og afhendingarstjóri, Sódavatn

Við notum Kling með Journey fyrir áskriftir, tínslu og sendingar með Dropp og í okkar eigin akstri. Tengingin gekk vel og við vorum fljótt komin af stað. Kerfið sér um allt áskriftarflæðið frá greiðslu til endurtekinnar rukkunar og einfaldar lífið gríðarlega..
SódavatnÁskriftir og sendingar

Aðstoð við að velja lausn

Spurðu Kling ræsi

Kling ræsir er spjallaðstoð á forsíðu Kling. Lýstu verkefninu þínu og því hvernig greiðsluferlið á að virka. Ræsirinn hjálpar þér að finna lausnir og skjölun sem henta verkefninu. Þú getur prófað hann án þess að stofna aðgang.

Opna Kling ræsi →
Kling ræsirHvað ertu að þróa og hvernig eiga greiðslurnar að virka?

Ég er að þróa bókunarvef og þarf að tengja greiðslur við bókunarferlið.

Þá gætu API og Greiðsluglugginn hentað þér. Á viðskiptavinurinn að greiða alla upphæðina við bókun eða aðeins staðfestingargjald og eftirstöðvarnar síðar?

Prófaðu Kling í verkefninu þínu

Stofnaðu aðgang, sæktu prófunarlykla og notaðu skjölunina til að prófa tenginguna í prófunarumhverfi Kling.