Fyrir góðgerða- og styrktarfélög

Stök framlög og mánaðarlegir styrkir á einum stað

Takið við stökum framlögum og reglulegum styrkjum með kortagreiðslum eða kröfum í heimabanka. Með Kling hafið þið yfirsýn yfir framlög og styrktaraðila og verjið minni tíma í umsýslu greiðslna.

Mánaðarlegir styrktaraðilarÁskriftir · Frjálsar greiðslur
Guðrún Halldórsdóttir3.000 kr./mánVirkt
Ólafur Sigurjónsson10.000 kr./mánVirkt
Stakt framlag25.000 kr.Greitt
1.284.000 kr. bárust í ágúst

Algengar áskoranir í dag

Þetta eru dæmi um það sem margir glíma við áður en þeir taka Kling í notkun.

Það vantar leið til að veita reglulegan stuðning

Fólk getur lagt fram staka upphæð en hefur ekki kost á að skrá sig fyrir mánaðarlegum styrk.

Umsýsla greiðslna tekur tíma

Stofna þarf kröfur, uppfæra lista í Excel og senda kvittanir handvirkt.

Einfaldar breytingar kalla á aðstoð skrifstofunnar

Styrktaraðili sem vill breyta styrkupphæðinni, uppfæra kortaupplýsingar eða hætta reglulegum stuðningi þarf að hafa samband við skrifstofuna til að fá aðstoð.

Svona nýtist Kling við fjársöfnun

Takið við framlögum og haldið utan um reglulegan stuðning

Með greiðsluhlekk á vefnum ykkar getur fólk lagt sitt af mörkum. Með Frjálsum greiðslum velur hver og einn upphæð framlagsins. Þið getið líka deilt hlekknum í tölvupósti eða á samfélagsmiðlum.

Með Áskriftum getur fólk skráð sig fyrir mánaðarlegum styrk. Styrkurinn er innheimtur mánaðarlega með kortagreiðslu eða kröfu í heimabanka og þið hafið yfirlit yfir styrktaraðila og greiðslustöðu þeirra.

Þú getur sent styrktaraðila hlekk í innheimtugáttina, þar sem hann getur sjálfur uppfært kortaupplýsingarnar sínar eða hætt reglulegum stuðningi. Til að breyta upphæðinni hefur hann samband við þig.

Mælt með fyrir þig

Lausnir fyrir góðgerða- og styrktarfélög

Þau nota Kling

Reynsla viðskiptavina

Ásgerður Björnsdóttir

Ásgerður Björnsdóttir

Framkvæmdastjóri, SÁÁ

Með Kling getum við tekið á móti framlögum og félagsgjöldum á netinu á einfaldan hátt. Það var mikilvægt fyrir okkur að hafa lausn sem bara virkar — og Kling skilaði einmitt því. Félagsmenn okkar geta nú greitt og endurnýjað félagsaðild sína án vandræða.
SÁÁGóðgerðarstarfsemi

Aðstoð við að velja lausn

Spurðu Kling ræsi

Kling ræsir er spjallaðstoð á forsíðu Kling. Lýsið því hvernig þið takið við framlögum í dag og hvað þið viljið bæta. Ræsirinn hjálpar ykkur að finna lausnir sem henta starfseminni og nálgast upplýsingar um uppsetningu og verð.

Þú getur prófað Kling ræsi án þess að stofna aðgang. Ef þú vilt frekar tala við okkur geturðu óskað eftir því í spjallinu.

Opna Kling ræsi →
Kling ræsirHvernig takið þið við framlögum í dag?

Við erum styrktarfélag og viljum fá fleiri mánaðarlega bakhjarla.

Þá gætu Áskriftir hentað ykkur fyrir mánaðarlega styrki og Frjálsar greiðslur fyrir stök framlög þar sem fólk velur upphæðina sjálft. Hvernig takið þið við styrkjum í dag?

Takið við framlögum með Kling

Stofnið aðgang eða hafið samband við okkur til að kynna ykkur hvernig þið getið tekið við stökum framlögum og reglulegum styrkjum.