Fyrir ferðaskrifstofur og skipuleggjendur sérferða og heilsuferða

Haltu utan um staðfestingargjöld og eftirstöðvar

Taktu við staðfestingargjöldum með kortagreiðslum og dreifðu greiðslu eftirstöðva á umsamda daga. Með Kling hefurðu yfirsýn yfir greiðslustöðu ferðalanga og verð minni tíma í umsýslu greiðslna.

Japan · 12 dagarGreiðsluhlekkir · Áskriftir
Staðfestingargjald60.000 kr.Greitt
Eftirstöðvar · hlekkur sendur145.000 kr.1. sept.
Eftirstöðvar · hlekkur sendur145.000 kr.1. okt.
Greiðslur á umsömdum dögumYfirlit yfir greiðslustöðu á einum stað

Algengar áskoranir í dag

Þetta eru dæmi um það sem margir glíma við áður en þeir taka Kling í notkun.

Athuga þarf hvort greiðsla hafi borist áður en bókun er staðfest

Bókun berst í tölvupósti og staðfestingargjaldið með millifærslu. Þú þarft að finna greiðsluna á bankayfirlitinu og tengja hana við rétta bókun.

Lokagreiðslur kalla á handvirka eftirfylgni

Þú þarft að fylgjast með gjalddögum, athuga hvort greiðslur hafi borist og minna ferðalanga á ógreiddar eftirstöðvar.

Erlendir gestir vilja greiða með korti

Millifærslur milli landa geta tekið tíma og kallað á aukna fyrirhöfn. Gestir vilja geta greitt staðfestingargjaldið með korti þegar þeir bóka.

Svona nýtist Kling í ferðaþjónustu

Taktu við staðfestingargjaldi og skipuleggðu greiðslu eftirstöðva

Sendu ferðalangi greiðsluhlekk fyrir staðfestingargjaldið eða birtu hlekkinn á vefnum þínum. Þannig geta bæði íslenskir og erlendir gestir greitt með korti.

Fyrir eftirstöðvarnar sendirðu annan greiðsluhlekk á umsömdum degi, eða kröfu í heimabanka, og fylgist með greiðslustöðunni í Kling. Áskrift rennur þangað til henni er sagt upp, svo hún hentar ekki ferð sem er greidd upp með fyrirfram ákveðnum fjölda greiðslna.

Með Viðburðum geturðu haldið utan um fjölda plássa og skráða þátttakendur í hópferðum.

Notarðu bókunarkerfi nú þegar? Með forritaskilum (API) er hægt að tengja Kling við önnur kerfi. Hafðu samband við okkur til að kanna hvernig hægt er að tengja greiðslur við bókunarferlið þitt.

Mælt með fyrir þig

Lausnir fyrir ferðaþjónustu

Þau nota Kling

Reynsla viðskiptavina

Jökull Sólberg

Jökull Sólberg

Forritari hjá Trip to Japan

Það var virkilega einfalt að setja þetta upp. Ég las skjölin, tengdi API-ið við bókunarferlið okkar og við byrjuðum að taka við greiðslum á nokkrum dögum. Þetta er greiðslulausnin sem hefur vantað á Íslandi, hönnuð nákvæmlega eins og forritarar vilja vinna.
Trip to JapanFerðaþjónusta

Aðstoð við að velja lausn

Spurðu Kling ræsi

Kling ræsir er spjallaðstoð á forsíðu Kling. Lýstu því hvernig þú tekur við bókunum og greiðslum í dag og hvað þú vilt bæta. Ræsirinn hjálpar þér að finna lausnir sem henta starfseminni. Þú getur prófað hann án þess að stofna aðgang.

Opna Kling ræsi →
Kling ræsirHvernig tekurðu við bókunum og greiðslum í dag?

Við seljum sérferðir og viljum innheimta staðfestingargjald við bókun og eftirstöðvar síðar.

Þá gæti greiðsluhlekkur hentað fyrir staðfestingargjaldið og Áskriftir fyrir innheimtu eftirstöðva með reglulegum greiðslum. Eiga allir að greiða á sömu dögum eða miðast greiðsluáætlunin við bókunardag hvers og eins?

Haltu utan um greiðslur fyrir næstu ferð

Stofnaðu aðgang eða hafðu samband við okkur til að fara yfir innheimtu staðfestingargjalda og eftirstöðva og kanna hvernig hægt er að tengja greiðslur við bókunarferlið þitt.