8. september 2026
Endurtekin framlög og WooCommerce áskriftir
Endurteknar greiðslur urðu miklu einfaldari í þetta skiptið. Frjáls framlög geta núna verið vikuleg, mánaðarleg eða árleg, WooCommerce vörur geta selst sem áskrift, og það er auðveldara að halda utan um áskriftirnar sem þú ert nú þegar með.
Frjáls framlög geta verið endurtekin
Frjálsar greiðslur eru komnar úr beta og aðgengilegar öllum. Deildu einni síðu og leyfðu fólki að greiða það sem það vill, með stilltum upphæðum eða sinni eigin.
Nýja atriðið er tíðnin. Þú velur hvort síðan rukki vikulega, mánaðarlega eða árlega, og getur leyft greiðandanum að velja á milli staks framlags og endurtekins á síðunni sjálfri. Endurtekið framlag verður að alvöru áskrift sem endurnýjar sig sjálf, reynir aftur ef kortið klikkar og er hægt að segja upp á Mínum síðum. Markmiðamælir, QR-kóði til niðurhals og sýnilegt VSK-þrep fylgja með.

WooCommerce áskriftir
Hakaðu við Kling subscription á WooCommerce vöru, veldu tímabil, og varan selst sem áskrift. Kling sér um dagsetningarnar, kortauppfærslur og endurtilraunir þegar greiðsla mistekst, og WooCommerce fær eina greidda pöntun á hvert tímabil. Viðskiptavinir þínir sjá sjálfir um áskriftina sína á Mínum síðum, í gegnum hnapp á pöntuninni.
Þú þarft ekki WooCommerce Subscriptions viðbótina. Náðu í útgáfu 1.4.0 á download.kling.is/woocommerce.
Auðveldara að halda utan um áskriftir
- Breyttu því sem áskrift rukkar - opnaðu áskrift og breyttu upphæðinni, án þess að búa vöruna á bak við hana til upp á nýtt.
- Viðvörun þegar endurnýjun mistekst - viðskiptavinurinn fær póst og er beðinn um að laga kortið, í staðinn fyrir að detta hljóðlaust út.
- Áskriftaskýrslur - sjáðu hvað er að byrja, hvað er að hætta og hvað heldur, mánuð fyrir mánuð.
- Listi sem hægt er að þrengja - síaðu áskriftir eftir dagsetningu og greiðsluleið, með almennilegri síðuflettingu á löngum listum.

Þitt vörumerki á öllu sem viðskiptavinir sjá
- Póstar koma frá þér - póstar til viðskiptavina bera nafn fyrirtækisins þíns sem sendanda og þitt netfang í Reply-To, svo svörin berast til þín en ekki okkar.
- Þitt eigið merki - hlaðið upp merkinu sem mynd í staðinn fyrir að líma inn slóð, og það birtist á greiðslusíðunni, kvittunum og í póstum.
- Kvittanir á íslensku - kvittanapóstar eru sjálfgefið á íslensku, og það er rofi í Stillingum ef þú vilt frekar sleppa því að senda þær.
Félög og viðburðir
Tengdu félag við viðburð og meðlimir fá sitt verð sjálfkrafa við skráningu, alveg niður í frían miða ef félagsverðið er 0 kr. Allir aðrir greiða venjulegt verð. Engir kóðar til að dreifa og engin sérstök síða fyrir meðlimi.
Skráningar á viðburði má líka greiða með kröfu, og þátttakendalistinn fékk síur og Excel útflutning.

Félög fengu líka nokkrar nýjungar:
- Meðlimalisti sem hægt er að vinna í - leitaðu í honum, síaðu eftir stöðu og greiðslumáta, og flyttu hann út.
- Aðild sem greiðist einu sinni - fyrir inntökugjöld eða félag sem stendur eina önn og á að rukka einu sinni, án endurnýjunar.
- Setja félag í geymslu - komdu félagi sem hefur lokið sínu hlutverki úr augsýn án þess að tapa sögunni.
- Síða fyrir meðlimina þína - meðlimir skrá sig inn og sjá hvað aðildin gefur þeim, og þú getur opnað síðuna eins og meðlimurinn sér hana til að hjálpa í síma.
EUR og USD
Kling er ekki lengur bara í krónum. Greiðslusíðan, kvittanir, reikningar, póstar til viðskiptavina og tölurnar á stjórnborðinu ráða núna við EUR og USD, og hver gjaldmiðill er lagður saman fyrir sig. Við kveikjum á gjaldmiðli með þér, svo sendu okkur póst ef þú selur út fyrir landsteinana.
Vefsíða, í beta
Hýst vefverslun tengd vörunum þínum og greiðslusíðunni, sem þú breytir með því að tala við gervigreind, og þú getur beint þínu eigin léni á hana. Hún er ekki sjálfsafgreidd ennþá, svo svaraðu þessum pósti ef þú vilt prófa.
Greiðslusíðan
- Höfnun sem segir eitthvað - hafnað kort útskýrir sig á mannamáli, og útrunnið kort er stöðvað áður en viðskiptavinurinn er sendur í gegnum 3DS.
- Betri í síma - greiðsluskrefið var endurunnið fyrir litla skjái, og villuskilaboð í reitum tala rétta tungumálið.
Á stjórnborðinu
- Sjáðu hvað fólk skrifaði í greiðsluferlinu - greiðslusíðan sýnir svörin við sérsniðnu reitunum þínum.
- Fleiri API lyklar, með merkimiðum - nefndu lyklana eftir tengingum og gefðu út lykla með lesaðgangi fyrir það sem á aldrei að skrifa neitt.
- Skýrari villur í kröfum - þegar bankinn hafnar kröfu færðu setningu sem þú getur brugðist við í staðinn fyrir kóða, og ómögulegar kennitölur eru stöðvaðar áður en þær eru sendar.
- Hraðari viðskiptavinalisti - hann var þungur á stórum reikningum. Það er hann ekki lengur.
Fyrir forritara
Núna er komin MCP tenging: límdu eina slóð inn í Claude eða ChatGPT og aðstoðarmaðurinn getur lesið Kling gögnin þín. Lyklar með lesaðgangi fá bara lesverkfæri, svo lykillinn sem þú lætur hann fá ræður í hvað hann kemst.
Líka nýtt: `/v1/reports` endapunktar með lesaðgangi, `GET /v1/payment-intents` listi, `claim.created` og `claim.paid` vefkrókar, vefkrókar þegar endurnýjun mistekst, þegar endurtilraun tekst og þegar sagt er upp á Mínum síðum, og idempotency lag sem geymir ekki lengur misheppnað svar undir lyklinum þínum.
Ef eitthvað er bilað eða vantar, sendu okkur endilega póst á hallo@kling.is. Við lesum allt sem kemur inn.