
Ævintýri í Kenía, 5.–21. júní 2027
Einstök ferð fyrir alla fjölskylduna. Ferðamenn kynnast landi og þjóð á persónulegan hátt, bæði í Nairobi og á landsbyggðinni, auk skólastarfs sem Íslenska barnahjálpin rekur. Í Nairobi förum við í sund og á söfn, heimsækjum teræktarsvæðið og Harvestskólana. Í Loitoktok við rætur Kilimanjaro gistum við í nýju gistihúsi Íslensku barnahjálparinnar með útsýni til fjallsins og kynnumst Maasai fólkinu. Við skoðum tvo af flottustu þjóðgörðum Kenía og endum á ströndinni við Indlandshaf í Mombasa. Verð: 660.000 kr. á mann miðað við tvo í herbergi. Aukagjald fyrir einn í herbergi á hótelum er 60.000 kr. Afsláttur fyrir börn 3–11 ára er 20% og 50% fyrir börn yngri en 3 ára. Innifalið: Flug til Kenía með farangri. Öll gisting, allur akstur, lestir og innanlandsflug. Hálft fæði í Nairobi, fullt fæði í Loitoktok og safaríferð, hálft fæði á ströndinni. Aðgangseyrir í þjóðgarða og söfn. Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Máltíðir á veitingahúsum, kaffihúsum og í lest. Drykkir á hótelum, þjórfé og bátsferð. Fararstjórar: Þórunn Helgadóttir og Samuel Lusiru Gona frá Kenía. Ferðaplan í stuttu máli: 5. jún: Flogið um London, ein nótt þar. 6.–10. jún: Nairobi. Þjóðminjasafnið, fræðsla um keníska menningu, Harvestskólinn, grillveisla á Safari Park, gíraffagarðurinn, Karen Blixen safnið og teakrarnir. 11.–12. jún: Loitoktok. Skólaheimsókn, sunnudagssamkoma nemenda og Maasai fólkið. 13. jún: Safarí í Amboseli, gist í tjaldbúðum. 14.–15. jún: Tsavo West, Mzima springs og Ngutuni Lodge. 16.–19. jún: Fjögurra stjörnu hótel við Indlandshaf. 20. jún: Gamli bærinn í Mombasa, flug til Nairobi og heim. 21. jún: Lent á Íslandi. Staðfestingargjald 50.000 kr. á mann greiðist við bókun. Lokagreiðsla 14 dögum fyrir brottför. Sjá ferðaskilmála Ferðasýnar á ferdasyn.is.