Test-umhverfi: engar raunverulegar greiðslur.
Ferðasýn ehf.

Ævintýri í Kenía, janúar 2027

15. janúar 2027 – 31. janúar 2027 · 17 dagar660.000 kr. á mann

Sól, sumar, menning, safarí og strönd! Ógleymanleg ferð sem veitir einstaka innsýn og frábæra upplifun af landi og þjóð. Ferðin hefst í Nairobi þar sem við förum á söfn, heimsækjum te- og kaffiræktarsvæði og Harvestskólana sem Íslenska barnahjálpin starfrækir. Þaðan höldum við til Loitoktok við rætur Kilimanjaro, kynnumst menningu Maasai fólksins, förum í safarí í Amboseli og Tsavo West og endum á fjögurra stjörnu hóteli við strönd Indlandshafs. Verð: 660.000 kr. á mann miðað við tvo í herbergi. Aukagjald fyrir einn í herbergi er 50.000 kr. Innifalið: Flug til Kenía. Öll gisting, allur akstur, lest og innanlandsflug. Hálft fæði í Nairobi, fullt fæði í Loitoktok og í safaríferð, hálft fæði á ströndinni. Aðgangseyrir í þjóðgarða. Teskoðunarferð. Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Máltíðir á veitingahúsum, kaffihúsum og í lest. Drykkir á hótelum, þjórfé, aðgangseyrir á söfn, gíraffagarðinn og „Animal orphanage“. Bátsferð og afþreying við ströndina. Fararstjórar: Þórunn Helgadóttir, sem hefur búið og starfað í Kenía í 20 ár, og Samuel Lusiru Gona frá Kenía. Ferðaplan í stuttu máli: 15. jan: Flogið frá Íslandi til Nairobi. 16.–21. jan: Nairobi. Þjóðminjasafnið, Harvestskólinn í Kariobangi, grillveisla á Safari Park, gíraffagarðurinn, Karen Blixen safnið og Kiambethu teræktin. 22.–23. jan: Loitoktok við rætur Kilimanjaro. Skólaheimsókn og Maasai fólkið. 24. jan: Safarí í Amboseli þjóðgarðinum. 25. jan: Tsavo West þjóðgarðurinn og Mzima springs. 26.–29. jan: Fjögurra stjörnu hótel við Indlandshaf. 30. jan: Flug til Nairobi og heim. Lending á Íslandi 31. jan. Staðfestingargjald 50.000 kr. á mann greiðist við bókun. Lokagreiðsla 14 dögum fyrir brottför. Sjá ferðaskilmála Ferðasýnar á ferdasyn.is.

Hve margir ferðast?

1 ferðalangur

Bókandi

Áminningar um greiðslur berast á þetta netfang.

Ferðalangur 1

Skilmálar ferðarinnar

Bókun er bindandi þegar staðfestingargjald, 50.000 kr. á farþega, hefur verið greitt. Lokagreiðsla greiðist 14 dögum fyrir brottför. Afbókun skal send á keniaferdir@gmail.com. - Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 56 dögum fyrir brottför: án kostnaðar. - Síðar en það, en meira en 56 dögum fyrir brottför: staðfestingargjald er óendurkræft. - 56–21 degi fyrir brottför: 50% af heildarverði, þó aldrei lægra en staðfestingargjald. - 20–15 dögum fyrir brottför: 65% af heildarverði. - 14–8 dögum fyrir brottför: 75% af heildarverði. - 7 dögum fyrir brottför eða síðar: óendurkræft. Hafi flugmiði verið keyptur í samráði við farþega gilda reglur flugmiðans. Að öðru leyti gilda almennir ferðaskilmálar Ferðasýnar ehf. (kt. 511114-0550) á ferdasyn.is/ferdaskilmalar.