
Golf í Kenía, 2.–12. október 2027
Kenía er töfrandi land að heimsækja. Í þessari ferð spilum við frábært golf og kynnumst landi og þjóð á einstakan hátt. Við byrjum í Nairobi, „grænu borginni í sólinni“, þar sem eru einstaklega fallegir golfvellir, skemmtilegir veitingastaðir og fjölbreytt mannlíf, og höldum svo á hinn fagra Vipingo Ridge golfvöll við strönd Indlandshafs. Gisting í Nairobi er á PAX Manor, litlu 5 stjörnu hóteli rétt hjá golfvöllunum (28 herbergi, sundlaug, líkamsrækt, spa og veitingastaður). Í Vipingo er gist í einkavillum með sundlaug og kokki. Nairobi er í 1600–1700 m hæð, loftslagið milt og golfkúlan flýgur að jafnaði um 10 metrum lengra. Spilað er með reyndum kylfusveinum (caddy) á öllum völlum. Verð: frá 680.000 kr. á mann í tveggja manna herbergi. Aukagjald fyrir einn í herbergi er 100.000 kr. Viðbótar-safaríferð 13.–16. október (Tsavo West, Loitoktok og Amboseli): 160.000 kr. á mann. Hafið samband við Ferðasýn til að bæta henni við. Innifalið: Flug frá Íslandi til Kenía með einni tösku og golfsetti. Gisting eina nótt á leiðinni. Gisting með morgunverði í Nairobi (standardherbergi á PAX Manor). Gisting í villum með morgun- og hádegisverði í Vipingo. Allt að tíu 18 holu golfhringir með caddy. Allur ferðakostnaður innanlands í Kenía, innanlandsflug og lest. Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Tvær máltíðir á dag í Nairobi og ein í Vipingo. Uppfærsla í deluxe herbergi á PAX Manor. Drykkir og þjórfé. Aðgangseyrir á söfn og í skoðunarferðir. Fararstjóri: Þórunn Helgadóttir, sem hefur að mestu búið og starfað í Kenía í 20 ár. Ferðaplan í stuttu máli: 2. okt: Flogið til London, Amsterdam eða Parísar, ein nótt þar. 3. okt: Beint flug til Nairobi, gisting á PAX Manor. 4.–8. okt: Fimm hringir á Windsor og Muthaiga, safarí í Nairobi National Park, Karen Blixen safnið, Tigoni teræktin og heimsókn í Harvestskólann. 9.–12. okt: Morgunflug til Mombasa og fjórir hringir á Vipingo Ridge. 12. okt: Flug til Nairobi og heim. Lending á Íslandi að morgni 13. október. Staðfestingargjald 50.000 kr. á mann greiðist við bókun. Lokagreiðsla 14 dögum fyrir brottför. Sjá ferðaskilmála Ferðasýnar á ferdasyn.is.