
Golf í Kenía, 5.–16. maí 2027
Kenía er töfrandi land að heimsækja. Í þessari ferð spilum við frábært golf og kynnumst landi og þjóð á einstakan hátt. Við byrjum í Nairobi, „grænu borginni í sólinni“, þar sem eru einstaklega fallegir golfvellir, skemmtilegir veitingastaðir og fjölbreytt mannlíf, og höldum svo á hinn fagra Vipingo Ridge golfvöll við strönd Indlandshafs. Gisting í Nairobi er á PAX Manor, litlu 5 stjörnu hóteli rétt hjá golfvöllunum (28 herbergi, sundlaug, líkamsrækt, spa og veitingastaður). Í Vipingo er gist í einkavillum með sundlaug og kokki. Nairobi er í 1600–1700 m hæð, loftslagið milt og golfkúlan flýgur að jafnaði um 10 metrum lengra. Spilað er með reyndum kylfusveinum (caddy) á öllum völlum. Verð: frá 690.000 kr. á mann í tveggja manna herbergi. Aukagjald fyrir einn í herbergi er 100.000 kr. Viðbótar-safaríferð 16.–19. maí (Tsavo West, Loitoktok og Amboseli): 150.000 kr. á mann. Hafið samband við Ferðasýn til að bæta henni við. Innifalið: Flug frá Íslandi til Kenía með einni tösku og golfsetti. Gisting eina nótt á leiðinni. Gisting með morgunverði í Nairobi (standardherbergi á PAX Manor). Gisting í villum með morgun- og hádegisverði í Vipingo. Allt að tíu 18 holu golfhringir með caddy. Allur ferðakostnaður innanlands í Kenía, innanlandsflug og lest. Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Tvær máltíðir á dag í Nairobi og ein í Vipingo. Uppfærsla í deluxe herbergi á PAX Manor. Drykkir og þjórfé. Aðgangseyrir á söfn og í skoðunarferðir. Fararstjóri: Þórunn Helgadóttir, sem hefur að mestu búið og starfað í Kenía í 20 ár. Ferðaplan í stuttu máli: 5. maí: Flogið til London, Amsterdam eða Parísar, ein nótt þar. 6. maí: Beint flug til Nairobi, gisting á PAX Manor. 7.–11. maí: Fimm hringir á Windsor og Muthaiga, safarí í Nairobi National Park, Tigoni teræktin, Karen Blixen safnið og heimsókn í Harvestskólann. 12.–16. maí: Morgunflug til Mombasa og fimm hringir á Vipingo Ridge. 16. maí: Flug til Nairobi og heim. Lending á Íslandi að morgni 17. maí. Staðfestingargjald 50.000 kr. á mann greiðist við bókun. Lokagreiðsla 14 dögum fyrir brottför. Sjá ferðaskilmála Ferðasýnar á ferdasyn.is.