Test-umhverfi: engar raunverulegar greiðslur.
Ferðasýn ehf.

Kennaraferð til Kenía, 23. júní – 9. júlí 2027

23. júní 2027 – 9. júlí 2027 · 17 dagar660.000 kr. á mann

Menningin, skólinn og samfélagið. Fagleg og styrkbær ferð fyrir kennara og annað fagfólk. Ferðin uppfyllir skilyrði til ferðastyrks t.d. hjá KÍ og fleiri sjóðum stéttarfélaga. Við heimsækjum skóla Íslensku barnahjálparinnar og nemendur og foreldra þeirra, hlýðum á fyrirlestra um skólarekstur, keníska menningu og skólakerfið (frá keníska menntamálaráðuneytinu) og kennarar fylgjast með kennslu í sínu fagi. Að fagferð lokinni förum við í safarí í tvo þjóðgarða og endum við Indlandshaf. Verð: frá 660.000 kr. á mann með flugi miðað við tvo í herbergi. Aukagjald fyrir einn í herbergi er 60.000 kr. Aukagjald fyrir 6 nætur á Hotel Windsor í Nairobi er 60.000 kr. á mann. Innifalið: Flug frá Íslandi til Kenía með einni tösku. Gisting með hálfu fæði í Nairobi og Mombasa. Gisting með fullu fæði við Kilimanjaro og í safarí. Aðgangseyrir í tvo þjóðgarða, á söfn og teskoðunarferð. Allur ferðakostnaður innanlands í Kenía, þar með talið innanlandsflug og lest. Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Ein máltíð á dag í Nairobi og Mombasa. Drykkir og þjórfé. Fararstjórar: Þórunn Helgadóttir, sem hefur búið og starfað í Kenía í 20 ár, og Gunnhildur Gunnarsdóttir, löggiltur leiðsögumaður. Ferðaplan í stuttu máli: 23.–24. jún: Flogið um Evrópu til Nairobi. 25.–29. jún: Nairobi. Fyrirlestrar, Harvestskólarnir í Kariobangi, heimilisheimsóknir, Tigoni teakrarnir, skóladagur og Karen Blixen safnið. 30. jún – 2. júl: Loitoktok. Heimavistarskólinn, Maasai fólkið og umræður um Ísland og Kenía. Fagferð lokið. 3. júl: Safarí í Amboseli. 4. júl: Tsavo West og Mzima springs. 5.–7. júl: Lest til Mombasa og frjálsir dagar við ströndina. 8. júl: Flug til Nairobi og heim. Lending í Keflavík 9. júlí. Staðfestingargjald 50.000 kr. á mann greiðist við bókun. Lokagreiðsla 14 dögum fyrir brottför. Sjá ferðaskilmála Ferðasýnar á ferdasyn.is.

Hve margir ferðast?

1 ferðalangur

Bókandi

Áminningar um greiðslur berast á þetta netfang.

Ferðalangur 1

Skilmálar ferðarinnar

Bókun er bindandi þegar staðfestingargjald, 50.000 kr. á farþega, hefur verið greitt. Lokagreiðsla greiðist 14 dögum fyrir brottför. Afbókun skal send á keniaferdir@gmail.com. - Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 56 dögum fyrir brottför: án kostnaðar. - Síðar en það, en meira en 56 dögum fyrir brottför: staðfestingargjald er óendurkræft. - 56–21 degi fyrir brottför: 50% af heildarverði, þó aldrei lægra en staðfestingargjald. - 20–15 dögum fyrir brottför: 65% af heildarverði. - 14–8 dögum fyrir brottför: 75% af heildarverði. - 7 dögum fyrir brottför eða síðar: óendurkræft. Hafi flugmiði verið keyptur í samráði við farþega gilda reglur flugmiðans. Að öðru leyti gilda almennir ferðaskilmálar Ferðasýnar ehf. (kt. 511114-0550) á ferdasyn.is/ferdaskilmalar.