Test-umhverfi: engar raunverulegar greiðslur.
Ferðasýn ehf.

Golf- og safaríferð um páska, 13.–29. mars 2027

13. mars 2027 – 29. mars 2027 · 17 dagar820.000 kr. á mann12 sæti laus

Kenía er töfrandi land að heimsækja. Í þessari ferð spilum við frábært golf og kynnumst landi og þjóð á einstakan hátt. Við byrjum í Nairobi, „grænu borginni í sólinni“, þar sem eru einstaklega fallegir golfvellir, skemmtilegir veitingastaðir og fjölbreytt mannlíf, förum í safarí í Tsavo West og Amboseli, heimsækjum Loitoktok við rætur Kilimanjaro og spilum á hinum fagra Vipingo Ridge golfvelli við strönd Indlandshafs. Gisting í Nairobi er á PAX Manor, litlu 5 stjörnu hóteli rétt hjá golfvöllunum (28 herbergi, sundlaug, líkamsrækt, spa og veitingastaður). Í Vipingo er gist í einkavillum með sundlaug og kokki. Nairobi er í 1600–1700 m hæð, loftslagið milt og golfkúlan flýgur að jafnaði um 10 metrum lengra. Spilað er með reyndum kylfusveinum (caddy) á öllum völlum. Verð: 820.000 kr. á mann í tveggja manna herbergi. Aukagjald fyrir einn í herbergi er 100.000 kr. Innifalið: Flug frá Íslandi til Kenía með einni tösku og golfsetti. Gisting í London. Gisting með morgunverði í Nairobi. Gisting með morgun- og hádegisverði í Vipingo. Allt að tíu 18 holu golfhringir með caddy. Allur ferðakostnaður innanlands í Kenía. Gisting með fullu fæði í safarí, safaríbílar og aðgangseyrir í tvo þjóðgarða. Innanlandsflug og lest. Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Tvær máltíðir á dag í Nairobi og ein í Vipingo. Drykkir og þjórfé. Aðgangseyrir á söfn og skoðunarferðir. Fararstjóri: Þórunn Helgadóttir. Ferðaplan í stuttu máli: 13. mar: Flogið til London, ein nótt þar. 14. mar: Beint flug til Nairobi. 15.–19. mar: Fimm hringir á Windsor og Muthaiga (þar sem Kenya Open er haldið), heimsókn í Harvestskólann, Karen Blixen safnið og Tigoni teræktin. 20.–24. mar: Morgunflug til Mombasa og fimm hringir á Vipingo Ridge. 25. mar: Lest í Tsavo West, Serena Kilaguni Lodge. 26.–27. mar: Loitoktok og safarí í Amboseli. 28. mar (páskadagur): Til Nairobi og flug heim. Lending á Íslandi að morgni 29. mars. Staðfestingargjald 50.000 kr. á mann greiðist við bókun. Lokagreiðsla 14 dögum fyrir brottför. Sjá ferðaskilmála Ferðasýnar á ferdasyn.is.

Hve margir ferðast?

1 ferðalangur

Bókandi

Áminningar um greiðslur berast á þetta netfang.

Ferðalangur 1

Skilmálar ferðarinnar

Bókun er bindandi þegar staðfestingargjald, 50.000 kr. á farþega, hefur verið greitt. Lokagreiðsla greiðist 14 dögum fyrir brottför. Afbókun skal send á keniaferdir@gmail.com. - Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 56 dögum fyrir brottför: án kostnaðar. - Síðar en það, en meira en 56 dögum fyrir brottför: staðfestingargjald er óendurkræft. - 56–21 degi fyrir brottför: 50% af heildarverði, þó aldrei lægra en staðfestingargjald. - 20–15 dögum fyrir brottför: 65% af heildarverði. - 14–8 dögum fyrir brottför: 75% af heildarverði. - 7 dögum fyrir brottför eða síðar: óendurkræft. Hafi flugmiði verið keyptur í samráði við farþega gilda reglur flugmiðans. Að öðru leyti gilda almennir ferðaskilmálar Ferðasýnar ehf. (kt. 511114-0550) á ferdasyn.is/ferdaskilmalar.