Er íslenskur hlutabréfamarkaður ónýtur?
Um viðburðinn
Velta á innlendum hlutabréfamarkaði hefur ekki verið minni frá árinu 2020. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um tæp 14% á árinu á meðan aðrir norrænir markaðir hafa hækkað. Lífeyrissjóðir eru ráðandi í eignarhaldi, fáir einkafjárfestar bera markaðinn uppi og tæpir 2.000 milljarðar króna liggja á innlánum heimila. Er þetta tímabundin lægð í háu vaxtastigi eða kerfislægur vandi? Hver á að kaupa íslensk hlutabréf á næstu árum og hvað þarf að breytast? FVH fær til sín fólk sem horfir á markaðinn frá ólíkum hliðum: ● Andrea Olsen, framkvæmdastjóri Frigus ● Helgi Frímannsson, greining í verðbréfamiðlun Landsbankans ● Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs ● Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá Fundarstjóri er Rósa Kristinsdóttir, sérfræðingur hjá VEX. Að pallborði loknu verður opið fyrir spurningar úr sal. Frítt fyrir félaga í FVH, 4.990 kr. fyrir aðra gesti.