Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Jólapöbbkviss FVH

DES10
Fimmtudagur 10. desember
kl. 17:00 · Bæta í dagatal
Vinnustofa Kjarval
Ókeypis
Miðar
1

Um viðburðinn

Jóhann Alfreð uppistandari mætir og mun slá á létta strengi og bjóða svo upp á skemmtilegt pöbbkviss með jólaívafi. Hér reynir á að vera vel inni í málefnum líðandi stundar, vera í jólafíling og þekkja til viðskipta- og hagfræðitengdra málefna. Viðburðurinn er aðeins opinn félagsfólki FVH, en félögum er velkomið að koma með gesti. Veglegir vinningar verða í boði: 1. sæti Gjafabréf fyrir afslöppun á Hótel Búðum. Gjafabréfið inniheldur gistingu fyrir tvo í tveggja manna superior standard herbergi. Þriggja rétta veislukvöldverð „eftir kenjum kokksins“. Óvæntan glaðning við innritun og morgunverðarhlaðborð. 2. sæti Gjafabréf hjá Sælkerabúðinni þar sem jólakræsingarnar eru mættar og jólaspenningurinn farinn að magnast upp! Take-away jólahlaðborð, hátíðarseðlar, glæsilegar gjafakörfur og allt sem þarf í jólamáltíðina finnur þú hjá þeim. Þetta er kjörið tækifæri til að styrkja tengslin, virkja keppnisskapið og gæða sér á léttum veitingum í jólastemningu.