Ásdís Kristjánsdóttir næsti gestur í Viðskiptaspjallinu
Um viðburðinn
Næsti gestur í Viðskiptaspjalli FVH, Kjarval og Viðskiptaráðs er Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og hagfræðingur ársins 2025. Ásdís hefur unnið að umfangsmiklum breytingum sem bæjarstjóri undanfarin ár. Má þar nefna róttækar aðgerðir á skipulagi leikskólamála, hagræðingu í rekstri bæjarins, lækkun fasteignaskatta og nú síðast sýnt frumkvæði í baráttu við verðbólgu með þaki á gjaldskrárhækkanir sem aðrir aðilar hafa fylgt í kjölfarið. Ásdís hefur víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi, meðal annars hjá Samtökum atvinnulífsins sem forstöðumaður efnahagssviðs og aðstoðarframkvæmdastjóri samtakanna. Þá hefur hún einnig starfað á fjármálamörkuðum, setið í stjórnum fyrirtækja og gegnt trúnaðarstörfum fyrir stjórnvöld. Hún hefur verið sýnileg í þjóðfélagsumræðu um efnahagsmál, verið rödd fyrir umbætur og lagt sitt af mörkum til skýrari stefnumótunar – jafnt fyrir opinbera aðila sem atvinnulífið í heild. Ásdís hefur lýst sjálfri sér sem metnaðarfullri keppnismanneskju sem gangi í öll verk á þeim forsendum að leysa þurfi vandamál og yfirstíga hindranir. Við ræðum um ferilinn, sigra jafnt sem áskoranir, gusur, golf og framtíðarsýn fyrir íslenskt atvinnulíf. Léttar veitingar í boði og skemmtileg stemning. Ekki missa af kraftmiklu spjalli við Ásdísi Bæjó.